Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 15
Dóma- og sýningarstörf
í sauðfjárrækt haustið 1998
Fullvíst má telja að aldrei áður hafí verið unnið
jafn umfangsmikið starf við dóma á lifandi
sauðfé á vegum búnaðarsambandanna eins og
haustið 1998. Þar var um að ræða hinar umfangs-
miklu afkvæmarannsóknir sem fjallað er um í grein
á öðmm stað í blaðinu, auk heföbundinnar skoðun-
ar á verðugum ásetningshrútsefnum. Einnig er um
að ræða sýningar á veturgömlum hrútum um allt
land, en um báða síðartöldu þættina er fjallað i
greinum hér í blaðinu. Að þessari vinnu kom ijöldi
ráðunauta.
Á svæði Búnaðarsamtaka Vesturlands var startið
undir stjóm Lárusar G. Birgissonar, en með honum
störfuðu Friórik Jónsson, Hallgrímur Sveinsson og
Guðmundur Sigurðsson. Þeir fóru vítt um í þessari
vinnu því að auk starfssvæðis Búnaóarsamtakanna
önnuðust þeir hana einnig í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og í Reykhólahreppi. Á öðrum stöðum á
svæði Bsb. Vestijarða var vinnan í höndum Þor-
valdar Þórðarsonar, bónda á Stað í Súgandafirði,
líkt og haustið áður.
Dómstörf í Strandasýslu voru líkt og áóur í hönd-
um Brynjólfs Sæmundssonar. Gunnar Þórarinsson
vann störfin í Vestur-Húnavatnssýslu, líkt og áður,
og hið sama gerði Guðbjartur Guðmundsson í
Austur-Húnavatnssýslu. í Skagafírði var vinnan á
höndum Jóhannesar Ríkharðssonar og Svanborgar
Einarsdóttur en í Eyjafirði vom Olafur G. Vagns-
son og Þórður. G. Sigurjónsson að störfum. I Þing-
eyjarsýslum voru það eins og haustið áður Ari
Teitsson og María S. Jónsdóttir sem unnu dómstörf.
Þórarinn Lárusson vann þessi störf í Múlasýslum. I
Austur-Skaftafellssýslu var vinnan á höndum Guð-
mundar Jóhannessonar og Höllu Eyglóar Sveins-
dóttur. Á Suðurlandi vom störfin unnin af þeim
Jóni Vilmundarsyni og Fanneyju Ólöfu Lárusdótt-
ur.
Á vegum BÍ var Jón Viðar Jónmundsson við störf
og kom hann að vinnu á eftirtöldum stöðum; tals-
vert víða á Vesturlandi, m.a. í nær öllum sveitum á
Snæfellsnesi, lítillega í Strandasýslu og Vestur-
Húnavatnssýslu, í flestum sveitum á svæði Bsb.
EyjaQarðar þar sem haldnar voru sameiginlegar
sýningar og einnig dæmdi hann á sameiginlegum
sýningum í Norður-Þingeyjarsýslu, sem og á all-
nokkrum stöðum í Múlasýslum og aó síðustu kom
hann á nokkrar sýningar í Vestur-Skaftafellssýslu.
Skrif um sýningar eru byggð á umsögnum við-
komandi dómara en texti er samræmdur og felldur
í eina heild af Jóni Viðari.
FREYR 5-6/99 - 15