Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 42
Vanhöld á lömbum
Inngangur
Vanhöld unglamba eru mismikil
bæði eftir bæjum og héruðum.
Einnig eru áraskipti að vanhöldum.
ítarlegar athuganir hafa ekki verði
gerðar á þessu yfir landið í heild.
Lauslegar athuganir benda þó til
þess að vanhöld frá burði til hausts
séu að jafnaði undir 10%. Þau eru
minni af lömbum eldri áa eða um
6% en af gemlingslömbum um
15% að jafnaði. Vanhöldin fara
mjög eftir aðbúð og umhirðu, en
gæði heyjanna, sem eru háð veðr-
áttu að vori og sumri, hafa sitt að
segja og að sjálfsögðu veðráttan um
og eftir sauðburð. Hættur inni og
úti og vargur taka drjúgan toll á
mörgumbæjum. Það er því ljóst að
sjúkdómar eiga ekki alla sök á van-
höldum. Talsvert af vanhöldunum
er unnt að fyrirbyggja með aðgát og
fyrirhyggju. Erlendis eru lamba-
vanhöld víðast hvar meiri en hér á
landi eða frá 15-35%. Þar er m.a.
um að kenna mun fleiri sjúkdóm-
um.
Fósturlát
Fósturlát kemur fyrir árlega í
flestum hjörðum en í litlum mæli
(1-2%). Fóstrin geta dáið á fyrsta
hluta meðgöngu án þess að eftir því
sé tekið. Þegar nokkrar eða margar
ær eru lamblausar eða beiða upp
getur ástæðan verið smitefni eða
gallar eins og skemmd eða vöntun í
fóðri. Ástæða fósturláts getur verið
snögg breyting á fóðri eða streita
seinni hluta meðgöngu eða aðrir
sjúkdómar í ánum. Stundum lætur
helmingur ánna eða meira fóstrum.
Þá er um að ræða sýkingu, svokall-
að smitandi fósturlát, annað hvort
af völdum sýkilsins Camphylobact-
er foetus /Vibriosis, sem fullorðið
sauðfé og mörg fleiri dýr, þ.m.t.
fuglar, geta borið í sér, eða þá af
völdum bogfrymla (býgla), Býgla-
sótt/Toxoplasmosis, sem kettir
bera, einkum ungir kettir. Önnur
eftir
Sigurð
Sigurðarson,
dýralækni,
Keldum
smitefni, sem geta valdið fósturláti,
eru Hvanneyrarveikisýklar (List-
eria) og heysýklar (Basillus subtil-
is) úr gölluðu og sýktu heyi. Þeir
síðamefndu fínnast í gölluðu þurru
heyi, síður í rúllum. Líklega má
þakka nálluvæðingunni að þessi or-
sök fósturláta er nær horfln.
Sveppir (Aspergillus fumigatus)
eða sveppaeitur (Mycotoxin) geta
lika valdið fósturdauða. Þegar eitt
og eitt lamb fæðist andvana er
ástæðan oft skortur á súrefni vegna
þess að lokast hefur fyrir nafla-
streng í móðurlífi eða þá að fóstrið
hefur orðið fyrir hnjaski í móður-
kviði. Innvortis blæðingar finnast
við krufningu. Naflastrengur slitn-
ar stundum í erfiðri fæðingu og
lambinu blæðir út eða inn. Lamb
verður stundum fyrir meiðslum við
harkalega fæðingarhjálp. Það getur
kafnað í hildum. Alltaf ætti að leita
orsaka og líta á fósturlát sem hluta
af stærri vanda. Hafi fleiri en ein
ær látið, sendið þá fóstrið og hildir
kælt til rannsóknar. í þeim finnst
oft ástæðan þótt annað bregðist.
Takið ekki á fóstmm og hildum
með berum höndum, notið hanska.
Sýklar sem valda fósturláti eru oft
hættulegir fólki, ekki síst vanfærum
konum. Látið ekki hunda eða hræ-
fugla komast í fóstur eða hildir,
brennið það eða grafið strax. Takið
æmar ffá þeim óbornu og merkið
þær.
Þær geta dreift sýklum í marga
daga á eftir, þótt þær veikist ekki
sjálfar.
Ef tjón er mikið ætti sem fyrst að
hafa samband við dýralækni vegna
vottorðagjafar. Ætlið honum ekki
að votta það löngu síðar .
Búist til sauðburðar
* Athugið þrif ánna. Hverjar em
geldar, júgur- og spenagallar,
spenaop, sár, vörtur.
* Athugið framtennur og jaxla
ánna, skeiðarsig, kviðslit o.fl.,
skráið athugasemdir.
* Hugsið fyrir brynningu, notið
hentug sótthreinsanleg ílát og
hættulaus fyrir lömb.
* Skipuleggið aðstöðu fyrir lamb-
féð inni þannig að ekki verði of
þröngt, en nægilega bjart og
hættulaust fyrir lömbin. Yfirfar-
ið grindur og búið til nýjar.
Munið eftir sjúkrastíu.
* Skipuleggið útihólf fyrir bomar
ær og óbomar á sama hátt.
* Athugið læsanlegan lyfjaskáp.
Pantið merki, lyf og búnað til að
hafa við höndina?
* Athugið skráningarkerfi fyrir
sjúkdóma og lyfjagjöf vegna
vistvænnar framleiðslu.
* Búið í haginn fyrir fjárhirðinn og
vaktmenn á sauðburði og gerið
þeim auðvelt að sinna nauðsyn-
legum þrifum og sótthreinsun og
jafnvel geta sest niður til að hvíl-
ast og til að skrifa. Þá eru meiri
líkur á að starfinu verði sinnt af
kostgæfni eins og vert er.
* Brýnt er að hafa afdrep í fjárhús-
unum fyrir borð með handlaug
og rennandi heitt og kalt vatn og
sótthreinsiaðstöðu og aðstöðu til
að skipta um hlífðarfot.
Burðarhjálp
Ekki rjúka til að hjálpa of
snemma. Leyfið náttúmnni að hafa
sinn gang. Eðlileg fæðing fyrra
(fýrsta) lambs tekur 5-30 mínútur.
Innan klukkustundar á seinna lamb-
ið að koma, að öllu eðlilegu. Þurft
getur að kanna legu og ástand.
Lamb ber ekki alltaf rétt að. Bíða
má annan hálftíma, ef allt virðist á
42- FREYR 5-6/99