Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 16
Hrútasýningar
haustið 1998
Hrútasýningar haustið 1998
voru skipulagðar á sama
hátt og hófst haustið 1997.
Reiknað er með að aðeins vetur-
gamlir hrútar komi til sýninga, en
sýningar séu haldnar um allt land á
hverju ári. Odæmdir eldri hrútar eru
einnig teknir til sýningar og einnig
hrútar sem ætlað er að hafi ekki náð
að sýna sitt rétta gervi veturgamlir
og eru þvi endursýndir til hækkunar
í verðlaunaflokki.
Þátttaka í sýningahaldi var mikil.
Samtals voru sýndir 3073 hrútar á
landinu samanborið við 2617 haust-
ið 1997. Það er að visu áberandi hve
hrútaásetningur er orðinn breyti-
legur milli ára á þeim stöðum á
landinu þar sem sæðingar eru að-
eins stundaðar annað hvert ár. Þann-
ig eru nú sýndir talsvert færri hrútar
á Vesturlandi en haustið 1997 en á
Norðurlandi er hins vegar feikilega
mikil aukning í sýningarþátttöku.
Sýningarþátttaka eldri hrútanna
heyrir ekki enn sögunni til því að
244 hrútur, tveggja vetra og eldri,
var sýndur. Það er að vísu veruleg
fækkun frá haustinu áður þegar þeir
voru 436. Vegna þess hvemig sá
hópur hrúta er skilgreindur, sem á
sýningarrétt í þessum hópi, er tæp-
ast raunhæft að bera þungatölur
þeirra saman við tölur fyrri ára, en
þeir hrútar, sem sýndir voru, vigt-
uðu að meðaltali 93,4 kg. Af þeim
fengu 213 I. verðlauna viðurkenn-
ingu eða 87,3% þeirra, en þeir sem
ekki náðu þeirri viðurkenningu
fengu allir utan einn II. verðlaun.
Veturgömlu hrútarnir voru um-
talsvert fleiri en árið áður eða 2829,
samanborið við 2181 hrút, þá eða
tæplega 30% aukning í fjölda.
Hrútamir vora ívíð léttari en haust-
ið áður eða að jafnaði 80,1 kg en
haustið 1997 vora þeir að meðaltali
80,4 kg. Af þessum hrútum vora
2414 sem fengu I. verðlauna viður-
kenningu, eða 85,3%, sem er örlitlu
lakari flokkun en haustið 1997. Nú
voru 404 hrútar með II. verðlaun og
11 hrútar fengu III. verðlaun, þ.e.
töldust með öllu ónothæfír hrútar.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir
sýningarhaldi í hverri sýslu.
Ákveðið var að hafa þessa umfjöll-
un umfangsminni en á siðasta ári,
m.a. vegna þess að allitarlega er
gerð grein fyrir niðurstöðum af-
kvæmarannsókna haustið 1998 í
annarri grein og liklegt að þær nið-
urstöður, sem þar má fínna, gefí
meiri upplýsingar um kynbótagildi
hrútanna en einstaklingsdómur.
Rétt er að benda á að skýrslur um
sýningarniðurstöður fyrir einstakar
sveitir, ásamt skrám um I. verð-
launa hrúta, er að finna í sértöku
skýrsluriti frá BÍ sem mögulegt er
að panta sérstaklega og auglýst er á
öðrum stað í ritinu.
Hrútar á Staðarbakka í Hörgárdal haustið 1998.
Ljósm. Ólafur G. Vagnsson.
16- FREYR 5-6/99