Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 66

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 66
landbúnaðarafurða. Einnig fer ná- lega þriðjungur að auki til svæða sem byggja afkomu sina á landbún- aði í fonni byggðastyrkja. Hlutur sauðfjárbænda af heildarstyrkveit- ingum úr landbúnaðarsjóðum ESB var áætlaður 5% fyrir árið 1997. Árlegir styrkir eru greiddir til allra sauðijárbænda eftir fjárfjölda og að auki sérstakar uppbótargreiðslur til þeirra sem búa á harðbýlum svæð- um. Sérhver sauðfjárbóndi innan ESB á rétt á greiðslu úr landbúnaðar- sjóði sambandsins og miðast hún við þann fjölda áa sem hann fékk greiðslur út á árið 1991. Bein- greiðslur eru greiddar fyrir hverja á sem orðin er veturgömul eða hefur borið að minnsta kosti einu sinni. Fjöldinn er leiðréttur árlega til sam- ræmis við þau framleiðsluréttindi sem bændur hafa keypt, selt eða fengið úthlutað síðan. Beingreiðsl- umar em svæðatengdar og njóta bændur á harðbýlum svæðum hærri greiðslna en aðrir. Beingreiðslur Beingreiðslur eru styrkir sem greiddir era beint til sauöfjárbænda úr landbúnaðarsjóði ESB. Þeim er ætlað að vega upp muninn á meðal- talsmarkaðsverði á innri markaði sambandsins og því viðmiðunar- verði sem framkvæmdastjórnin ákveður og endurskoðar árlega. Þannig er beingreiðslunum ætlað að tryggja bændum viðunandi tekj- ur af búrekstrinum og um leið að lækka verð afurðanna til neytenda. Beingreiðslur eru greiddar út þrisvar sinnum á ári. Síðasta greiðslan er uppgjörsgreiðsla sem tekur mið af markaðsverði upp- gjörstímabilsins og því era fyrr- nefnd hlutföll einungis til viðmið- unar. Sækja þarf um beingreiðslur ár hvert. Kvóti er á fjölda áa sem hver bóndi fær greiðslur út á. Meginregl- an gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi sé 500 vetrarfóðraðar ær en frávik frá henni er að á harðbýlissvæðum fást óskertar beingreiðslur út á allt að 1.000 ær. Á hverja á umfram kvóta fæst helmingur bein- greiðslna. Fyrir árið 1998 er áætlað að beingreiðslur til sauðijárbænda i Skotlandi verði sem nemur 2.162 íkr. á hverja á. Harðbýlisstyrkir Harðbýlisstyrkir eru veittir sauð- fjárbændum á svæðum sem hafa verið skilgreind erfið eða mjög erf- ið til búsetu og samþykkt sem slík af ESB. Styrkir þessir era veittir bændum og útdeilt sem viðbót á beingreiðslur. Þegar búsetuskilyrði era metin er litið til beitarlands sauðfjár yfir sumar-tímann. Stærsti hluti styrksins, eða 90%, er greidd- ur út á sama tíma og fyrsti hluti beingreiðslu en 10% með uppgjöri beingreiðslna. Sömu reglur gilda um kvóta á ær og á öðram svæðum en beitarálagi er stýrt þannig að sett er þak á hversu margar ær mega vera á hvem hektara lands. Á erfið- um svæðum er greitt að hámarki fyrir 9 ær á hektara en 6 ær á svæð- um sem talin eru mjög erfið til bú- setu. Áætlaður harðbýlisstyrkur til skoskra fjárbænda fyrir árið 1998 er sem nemur 613 ikr. á hverja á. Auk þess fá bændur sem búa með hálendisfé sérstakan styrk sem nemur á bilinu 315 - 760 íkr. á hverja á, eftir búsetuskilyrðum og hvaða fjárstofn þeir rækta. Aörir styrkir Hér verða nefndir helstu styrkir, beinir og óbeinir, sem veittir eru til framleiðslu og sölu sauðfjárafurða innan ESB. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða og ekki er hægt að segja með vissu að sauð- fjárrækt á íslandi stæðu allir þessir styrkir til boða kæmi til ESB aðild- ar. Þeir styrkir sem hér eru nefndir era einungis dæmi um þá styrki sem snerta sauðfjárbændur innan ESB. Leiða má að því líkum að ein- hverjir styrkir sambærilegir þessum yrðu veittir til islenskrar sauðfjár- ræktar svo fremi að aðildar-samn- ingar íslands yrðu með svipuðu móti og samningar Breta eða Finna við ESB. Styrkimir eru yfírleitt veittir til einstakra verkefna sem falla undir skilgreind þróunar- markmið ESB en styrkhæf verkefni skipta hundruðum. Ekki er gerður greinarmunur á því hvort styrkimir eru greiddir af ESB eða viðkom- andi stjómvöldum. Rétt er að taka fram að styrkveitingar á vegum að- ildarríkjanna mega ekki brjóta i bága við reglur ESB. Dæmi uin slíka styrki eru: Fjár- festingastyrkir, geymslustyrkir, styrkir til ungra bænda, vinnslu- og markaðsstyrkir, innflutningshöft, umhverfisvemdarstyrkir, styrkir til lífræns búskapar, búlokastyrkir, skógræktarstyrkir, svæðisstyrkir og sérstakir styrkir til bænda norðan 62. breiddargráðu Ljóst er af ofangreindri umfjöllun að stefna ESB gagnvart landbúnaði og þeim málum sem honum tengj- ast, svo sem umhverfis- og byggða- málum, er gríðarlega flókin og margþætt í framkvæmd. Þó hefur tekist með þessari stefnu að ná þeim markmiðum sem að var stefnt. Dregið hefur verið úr stuðn- ingi við bændur, offramleiðsla hef- ur núnnkað og lífskjör bænda hafa batnað. Þrátt fyrir batnandi ástand í land- búnaði á greinin ennþá við erfið- leika að etja sem er ein af ástæð- unum fyrir fólksfækkun og öðram vandamálum dreifbýlla svæða ESB. Sjá má af útgjöldum ESB til landbúnaðar- og byggðamála hversu rík áhersla er lögð á þessa málaflokka. Árið 1996 vora útgjöld til þeirra um 80% af heildarútgjöld- um sambandsins. Mikilvægasti hluti styrkjakerfis- ins fyrir sauðfjárbændur felst í beingreiðslum. Einnig era styrkir vegna harðbýlis umtalsverður þátt- ur í tekjum sauðfjárbænda. Með þessum styrkjum era tekjur bænda innan ESB tryggðar, óháð búsetu. Einnig er áberandi hversu ríka áherslu ESB leggur á stuðning við unga bændur í þeim tilgangi að auðvelda kynslóðaskipti og þar 66- FREYR 5-6/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.