Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 39

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 39
Skoðun á lömbum haustið 1998 Reglubundin skoðun á lamb- hrútum á sér meira en tveggja áratuga hefð hjá þeim búnaðarsamböndum sem lengst hafa boðið ijáreigendum slíka þjónustu. Með tilkomu óm- sjánna íyrir fímm til sex árum varð öll skoðun lamba almennari en áður var. Síðustu tvö til þrjú árin hefur síðan orðið feikilega mikil aukning á ómmælingum og skoðun á gimbr- um. Upplýsingum um hrútlömb hefur verið safnað skipulega saman um árabil, en nú er í fyrsta sinn safnað frá búnaðarsamböndunum upplýsingum um ómmælingar á gimbrunum. Þar er samt ekki enn um skipulega skráningu þeirra upp- lýsinga að ræða hjá öllum sam- böndunum og því vantar eitthvað af þeim mælingum í það gagnasafn sem fékkst. Rétt er að benda á að lömb sem eru mæld og stiguð í sambandi við afkvæmarannsóknir koma með í þetta safn. Það eru hins vegar að stórum hluta gimbrar og þessar mælingar eru um leið víðast um land reglulegar mælingar gimbranna í sambandi við val ásetningslamba. Á Suðurlandi fer verulegur hluti af ómsjármælingun- um fram síðar að haustinu og skrán- ingar á þeim vantar í þau gögn sem hér eru til umfjöllunar. í sameiginlegum skrám var að fínna upplýsingar fyrir 7360 hrút- lömb með stigun og ómmælingar, sem er meiri fjöldi en áður, en þó aðeins aukning um tæpt eitthundr- að lamba frá haustinu áður. Þá eru upplýsingar um ómsjármælingar fyrir 28.496 gimbrar sem sýnir að umfang þessara mælinga er orðið feikilega mikið, sérstaklega með hliðsjón af því sem áður segir að þarna vantar upplýsingar frá sum- um landsvæðum að verulegu leyti. Á mynd 1 er gefið yfirlit um um- fang þessara mælinga á einstökum búnaðarsambandssvæðum og eftir sýslum á Suðurlandi. Það frávik er í þeim samanburði að lömb úr Sf. Blævur við Djúp teljast hér með ísafjarðarsýslum þó að félagið sé á starfssvæði Bsb. Strandamanna og lömb úr tveim vestustu hreppum í Suður-Þingeyjarsýslu, sem eru á svæði Bsb. Eyjaijarðar, teljast í Eyjafírði. Þama má sjá að mælingar hrút- lambanna endurspegla í stórum dráttum þau svæði þar sem mikið var að fínna af lömbum úr sæðingu, ef Strandasýsla er undanskilin sem er eins og áður með langsamlega mesta þátttöku í slíkum mælingum. Þannig eru mælingar hrútlamba í mjög takmörkuðu umfangi á Norð- urlandi haustið 1998 en á Vestur- landi er þátttakan í þeim hins vegar umtalsvert meiri en árið áður. Á Suðurlandi er umfang skoðunar á hrútlömbum einnig umtalsvert meira en það var á því svæði haust- ið 1997. Mælingar á gimbrunum eru að vonum mestar að umfangi þar sem þátttaka var mest í afkvæmarann- sóknum. Þannig eru flestar gimbrar mældar i Skagafírði en Stranda- sýsla og Vestur-Húnavatnssýsla fylgja þar fast á eftir. Einnig eru margar gimbrar mældar í Dala- sýslu, í Norður-Þingeyjarsýslu og í Múlasýslum. Mynd 1. Fjöldi lamba í skoðun i einstökum héruðum, annars vegar hrútlömb og hins vegar gimrarlömb. Þykkt bakvöðva Gimbrar Mynd 2. Samband á milli þykktar ómvöðva gimbra og hrúta undan sæðingar- stöðvarhrútum haustið 1998. FREYR 5-6/99 - 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.