Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 56

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 56
Kynbœtur til varnar riðu Rannsókn á arfgerðum príongensins í íslensku sauðfé m.t.t. riöusmits Undanfarin þrjú ár hafa farið fram á Rannsóknastofu í sameindalíffræði á Til- raunastöðinni að Keldurn rann- sóknir á breytileika príongensins í íslensku sauðfé og hugsanleg áhrif hans á næmi sauðfjár fyrir riðu. Niðurstöðumar benda til að hægt sé að kynbæta fé til að minnka líkum- ar á að það veikist af riðu. Það hef- ur löngum verið þekkt meðal sauð- ijárbænda að fé af ákveðnum ætt- um, t.d. undan ákveðnum hrút, fái frekar riðu en annað fé. Hér er því að öllum líkindum kornin erfða- fræðileg skýring á þvi af hverju fé er misnæmt fyrir því að smitast af þessum sjúkdómi. Príonsjúkdómar Riða í sauðfé er einn af svoköll- uðum príonsjúkdómum, en aðrir þekktir sjúkdómar eru Creutzfeldt- Jakob og Kum í mönnum, kúariða (BSE) í nautgripum og svipaðir sjúkdómar, sem fínnast í minkum og hjartardýrum. Þessir sjúkdómar eru ólæknandi en einkennandi fyrir þá eru skemmdir á taugakerfi, sem verða vegna uppsöfnunar á smit- efninu í heila sjúklinganna. Akveð- ið gen, sem finnst í erfðamengi allra spendýra og nokkurra lægri dýrategunda, svokallað príongen, ber forskrift þess próteins (príon- próteins) sem á umbreyttu formi er talið valda sjúkdómnum. Orsaka- valdurinn er því nú talinn vera smitandi prótein, en ekki veira eða baktería, því að ekkert erfðaefni hefur fundist í smitefninu. Þegar einstaklingur verður fyrir smiti kemur hið umbreytta prótein af stað keðjuverkun þannig að prótein þess sem sýkist komast einnig á um- eftir Stefaníu Þorgeirsdóttur . °9 Astríði Pálsdóttur Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum breytt og sýkjandi form og svo koll af kolli. Hlutverk príonpróteina, sem eru himnubundin sykruprótein, er enn óþekkt. Efni og aðferðir Fyrst var rannsakað hvort erfða- fræðilegur munur væri á milli riðu- lausra svæða og riðusvæða með því að skoða heilbrigt fé víðs vegar af landinu, bæði frá þeim svæðum (vamarhólfum) þar sem riða hefur aldrei fundist (Strandir, Snæfells- nes og Öræfi) (257 kindur) og ffá riðusvæðum (166 kindur). Síðan var fé sem sýkst hefur af riðu (92 kindur úr 76 riðuhjörðum frá 1987- 98) borið saman við heilbrigt fé úr riðuhjörðum (179 kindur). Einnig var tekin fyrir heil riðuhjörð og bomar saman arfgerðir og vefja- meinafræði. Tekin vom blóð-, eða vefjasýni og einangrað úr þeim erfðaefnið DNA. í rannsóknina var notað DNA vegna þess að mjög flókið og dýrt er að rannsaka príonpróteinið beint. Því næst var bútur af erfðaefninu, sem inniheldur príongenið, fjölfaldaður með PCR (polymerase chain reaction) aðferðinni og breytileiki þess rannsakaður með ýmsum greiningaraðferðum sameindalí- fræðinnar svo sem skerðibútameltu, bræðslugeli (denaturing gradient gel electrophoresis) og DNA rað- greiningu. Einkum vom skoðaðir þrír staðir í geninu (táknar númer Mynd 1. Breytileiki fundinn í príongeni íslensks sauðjjár. Bókstafirnir standa fyrir eftirfarandi amínósýrur; A. alanine, C. cysteine, H. histidine, M. methionine, Ntasparagine, Qtglutamine, R.arginine, S.serine, T.threonine, V.valine. 56- FREYR 5-6/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.