Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 13
Tafla 2. Bú með mest kjötmagn eftir skýrslufærða á haustió 1997
Nafn Heimili Félag Tala áa Lömb til nytja Kg pr. á
1 Félagsbúið Vöglum Hrafnagilshrepps 12 217 42,8
2 Lárus G. Birgisson Miðdal Skutulsfjarðar 14 236 41,8
3 Eiríkur Helgason Ytra-Gili Hrafnagilshrepps 11 209 41,7
4 Helgi Kristjánsson Sandholti 7 Búi 8 188 41,0
5 Friðrik Böðvarsson Syðsta-Ósi Y-Torfustaðahrepps 17 194 40,9
og Sf. Blævur, Sf. Hólmavíkurhrepps,
Sf. Kirkjubólshrepps, Sf. Norðri og
Sf. Kirkjuhvammshrepps.
Samtals voru 162 skýrsluhaldarar
á landinu öllu sem náðu að fram-
leiða 30 kg af dilkakjöti eða meira
eftir hverja skýrslufærða á haustið
1997. í töflu 2 er gefið yfirlit um þá
fímm aðila sem tróna efstir á þeim
lista. Allt eru þetta litlar hjarðir, það
sem oft er í daglegu talið nefnd tóm-
stundabú, en öll eru þau að ífam-
leiða yfir 40 kg af kjöti eftir hveija
á sem verður að teljast frábær
árangur. Efsta sætið skipar að þessu
sinni félagsbúið á Vöglum i Eyja-
fjarðarsveit þar sem 12 ær skila að
jafnaði 42,8 kg af dilkakjöti.
Bú þar sem fleiri en 100 ær eru
skýrslufærðar og ná þeim mörkum
að ffamleiða 28 kg af dilkakjöti eða
meira eru samtals 160 eða heldur
færri en árið áður eins og eðlilegt er
þegar meðalafúrðir fýrir landið eru
örlítið lægri nú. í töflu 3 er gefið
yfirlit um þau 15 bú, sem að þessu
sinni koma þar í efstu sæti. Athygli
vekur að þessi bú er að finna dreift
víða um land, þó að hlutur búanna í
Kirkjubólshreppi sé eins og ávallt
þar mestur. Tvö efstu búin hafa
skipt um sæti ffá árinu 1996. Að
þessu sinni er það Indriði Aðal-
steinsson á Skjaldfönn sem skipar
efsta sætið, en hjá honum voru 205
ær sem skiluðu til nytja að meðal-
tali 1,86 lambi og reiknað magn af
dilkakjöti er 38,9 kg eftir hverja á.
Þetta er einstæður og frábær árang-
ur, en lesendur Freys hafa kynnst
fjárbúskap lndriða í stórfróðlegu
viðtali hér í blaðinu fyrir nokkrum
árum. í öðru sæti kemur bú Andrés-
ar Kristinssonar á Kvíabekk í
Ólafsfirði, en hjá honum eru 112 ær
á skýrslu og skila þær að jafnaði
38,3 kg af kjöti. Þessi tvö bú standa
að þessu sinni nokkuð í sérflokki,
en síðan kemur hópur búa sem öll
eru að ná frábærum árangri, en
mörg þeirra hljóta að koma lesend-
um kunnuglega fyrir sjónum úr
hliðstæðum töflum frá fyrri árum.
Þó að í þessu yfirliti sé haldið
hefðbundnum aðferðum um saman-
burð og árangur metinn á grundvelli
framleiðslumagns eftir hverja kind
skal á það bent að slíkur saman-
burður getur í ljósi breyttra fram-
leiðsluaðstæðna á mörgum búum
aðeins sagt hluta sögunnar um
árangur. Það stendur að vísu óbreytt
að ekki aðrir en þeir sem búa við
góð framleiðsluskilyrði og standa að
búskap af dugnaði og fagmennsku
ná þeim árangri sem hefúr verið
fjallað um hér að framan. Jaíúljóst er
að fýrir þá framleiðendur sem nú
feta nýjar brautir í framleiðslunni
með dreifðari sláturtíma en áður eru
slíkar viðmiðanir enginn algildur né
sérlega góður mælikvarði.
Tafla 3 Bú með mest kjötmagn eftir skýrslufærða á haustið 1997, þar sem 100
eða fleiri ær voru skyrslufærðar
Nafn Heimili Félag Tala áa Lömb til nytja Kg pr. á
1 Indriði Aðalsteinsson Skjaldfönn Blævur 205 186 38,9
2 Andrés Kristinsson Kvíabekk Ólafsfjarðar 112 181 38,3
3 Hjálmar og Guðlaug Bergsstöðum Kirkjuhvammshrepps 276 203 35,7
4 Karl Kristjánsson Kambi Gils 155 190 34,6
5 Ástvaldur Jóhannesson Reykjum Hólahrepps 108 193 34,6
6 Aðalsteinn Jónsson Klausturseli Jökull 282 193 34,6
7 Halldóra Guðjónsdóttir Heydalsá Kirkjubólshrepps 146 187 34,1
8 Jóhann Ragnarsson Laxárdal Stefnir 306 211 34,1
9 Ragnheiður Jónsdóttir Gestsstöðum Kirkjubólshrepps 105 189 34,0
10 Ásgeir Sveinsson Innri-Múla Barðastrandarhrepps 146 172 33,9
11 Kristján S. Magnússon Gautsdal Gils 200 195 33,7
12 Bragi Guðbrandsson Heydalsá Kirkjubólshrepps 141 186 33,7
13 Björn og Guðbrandur Smáhömrum Kirkjubólshrepps 259 180 33,2
14 Þorsteinn Kristjánsson Jökulsá Borgarfjarðar 215 184 33,0
15 Nanna Magnúsdóttir Kálfanesi II Hólmavíkurhrepps 102 172 32,8
FrEYR 5-6/99 - 13