Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 14

Freyr - 01.05.1999, Blaðsíða 14
Afurðir veturgamalla áa Mynd 6. Reiknað magn af dilkakjöti eftir hverja veturgamla á eftir héruðum haustið 1997. Skipting í gæðaflokka Á mynd 5 er sýnd hlutfallsleg skipting á gæðaflokka á þeim 217.902 föllum sem höfðu upplýsingar um gæðamat. Um þessar niðurstöður er í raun ekki margt að segja frekar. Líklega er flokkun samkvæmt þessu mati, sem þarna var í síðasta sinn í framkvæmd, hagstæðari en nokkru sinni áður. Meginhluti fallanna fellur samt í einn og sama gæða- flokk þannig að ljóst er að skilaboðin sem framleiðandinn fékk um gæði vörunnar með þessu mati voru fremur takmörkuð. Áfram stendur einnig það að flokkun falla hjá þeim sem færa skýrslur hjá ijárræktarfclögunum er miklu hagstæðari heldur en gerist fyrir landið sem heild. Skráning á upplýsingum um ull- arþunga ánna er áfram jafn fátæk- leg og verið hefur. Af fullorðnu án- um eru aðeins 1.554 ær þar sem þessar upplýsingar er að fínna eða rúmt 1% af öllum ánunt. Meðalull- arþungi þeirra reyndist vera 2,49 kg, sem er ívíð minna en árið áður en vegna þess hve þessi skráning er takmörkuð er ekki óeðlilegt að nokkrar sveiflur verði á meðaltals- tölum á milli ára. Það virðist nánast vera eins og að klappa steininn að Mynd 5. Skipting eftir gœðaflokkun Jjárrœktarfélögunum haustið 1997. hvetja bændur til meiri skráningar á þessum þætti. Það hefur verið gert í öllunt skrifum um þessar niðurstöð- ur til íjölda ára án þess að árangur sé meiri en raun ber vitni. Hjá veturgömlu ánum var þessa skrán- ingu að finna um 366 ær og var meðaltal íyrir þær 2,10 kg. Að lokum skal gerð örstutt grein fyrir helstu niðurstöðutölum úr skýrslunum um veturgömlu æmar. Eins og áður hefur komið fram vora þær fleiri á skýrslu en áður eða samtals 30.629 ær, enda hefúr eins og menn þekkja verið örlítil fjölgun á ásettu fé á allra síðustu árum, eftir samfellt tímabil hraðfara fækkunar ljárstofhsins í nokkuð á annan ára- tug. Af gemlingunum, sem lifandi vora á sauðburði, voru 6.590 sem höfðu verið hafðir geldir eða 21,7% og er það umtalsvert lægra hlutfall en árið áður. Af g e m 1 i n g u n u m sem áttu að bera að voru eru síðan 3.892 algeldir eða 16,38%, 16.329 þeirra eiga eitt lamb eða 68,70%, tvílembdir voru 3.519 eða 14,81% og 25 áttu þrjú lömb eða 0,11%. Þannig eru fædd á föllum lamha i að Jafnaði °’77 lömb (0,68) eftir gemling, sem var lifandi á sauðburði, og 0,66 (0,58) lömb fást til nytja að hausti að jafnaði. Fijósemin, metin sem fjöldi lamba eftir hvem gemling, er því umtalsvert meiri en árið áður þó að meðalfijósemi gemlinganna sem eiga lamb sé alls ekki meiri. Þessi betri árangur skýrist eingöngu af því að mun hærra hlutfall gemlinganna er haft með hrút en árið áður. Fullt samræmi er á milli væn- leika lamba hjá gemlingunum og fullorðnu ánum þannig að eftir hvern gemling sem skilar lambi að hausti fæst minna kjötmagn haustið 1997 en 1996 eða 16,4 kg, samanborið við 17,0 kg þá, en vegna miklu meiri lambaQölda verður framleiðslan eftir hvern fóðraðan gemling talsvert meiri eða 9,8 kg að meðaltali haustið 1997 samanborið við 8,9 kg haustið 1996. Á mynd 6 eru meðalafurðir vetur- gömlu ánna í einstökum héruðum sýndar og kemur þar fram líkur munur og sést hefur mörg undan- gengin ár. Þær örfáu veturgömlu ær sem eru skýrslufærðar i Kjósar- sýslu skila mestum afurðum að jafnaði. Síðan koma mestar afúrðir, eins og áður, á Vestíjörðum og í Vestur-Húnavatnssýslu, en einnig eru miklar afúrðir hjá veturgömlu ánum í Suður-Múlasýslu. Minnstar eru afúrðir að meðaltali hjá vetur- gömlu ánum í Ámessýslu og munar verulega umfram helming á afúrð- um veturgömlu ánna í þeim héruð- um þar sem þær eru minnstar og mestar. 14- FREYR 5-6/99
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.