Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1999, Side 44

Freyr - 01.05.1999, Side 44
aðallega í sauðfé á svæðinu frá Eyjafirði til Vopnaljarðar. Orsökin er annar sýkill en sá sem veldur lambablóðsótt en þó af sama flokki (Clostridium tetani). Sýklamir lifa í jarðvegi en sýkja um sár í meltingarvegi eða sár eftir óhreina sprautu, mörkun eða merk- ingu. Einkenna verður fyrst vart í 2-4 vikna gömlum lömbum. Ein- kenni eru viðvarandi vöðvakrampar um allan líkamann. Meðhöndlun er engin nema sú helst að lina krampa með lyfjum og næra með maga- slöngu. Vöm felst í bólusetningu með stífkrampabóluefni, sem áður segir, og hreinlæti með alla hluti, sótthreinsun á naflastreng, hnífum, markatöngum og merkjum, en um- hverfis hús komi þrifnaðarlag af möl eða malbiki. Garnabólga - lambaskita Gamabólga og skita er algeng í lömbum fyrstu dagana eftir burð. Slímhúð mjógarnar er bólgin. Vökvi safnast í gömina og hreyf- ingar þarmanna örvast af erting- unni. Ýmis atriði, t.d. lélegt fóður ánna, júgurbólga í móður, ónóg mjólk, snöggar breytingar á fæðu, t.d. gervimjólk, óhreinlæti, kuldi o.s.frv. draga úr mótstöðukrafti lambanna, svo að ýmsir sýklar, sem annars em þeim meinlausir, geta valdið meltingartruflunum fyrstu dagana. Oft em einkenni lík því sem sést við lambablóðsótt. Lömbin verða dauf og lystarlaus, híma sinnulítil tímunum saman. Síðar fá þau þunna grænleita eða ljósleita skitu, jafnvel með blóðtaumum og taka oft út miklar þrautir. Sé ekki gripið til lækninga deyja lömbin á 1. eða 2. sólarhring vegna vökvataps. Meðhöndlun byggir fremur á hjúkr- un en lyfjum og er mest um vert að fyrirbyggja vökvatapið. Gefið þrisvar á dag upplausn salta og glú- kósa með magaslöngu, 50 ml á kg. Reyna má súrmjólk, AB-mjólk eða kakóduft í vatni. Króknun er al- geng samfara gamabólgu. Rétt er að einangra lambið vegna hættu á smitefnum fyrir önnur lömb og jafnvel fólk (böm og gamalt fólk eða viðkvæmt). Sýklalyf skal að- eins gefa að ráði dýralæknis. Slefsýki (kólíeitrun, vatnskjaftur, „watery mouth“) Sjúkdómur þessi er ekki nýr en útbreiddur orðinn og veldur víða miklu tjóni. Ástæða þess er fyrst og fremst sú að umhirða við sauð- burð er ekki i samræmi við aðstæð- ur og e.t.v. eru sérstakir og skæðir stofnar af kólí-sýklum á ferð. Slef- sýki er tvisvar til þrisvar sinnum J algengari í þrílembingum en ein- j lembingum, lömb lélegra áa veikj- ast fremur en undan góðum ám. Komi eitthvað fyrir lömbin á fyrsta sólarhring er þeim hættara. Fái lömbin nægan brodd nógu snemma (50 ml/kg á fyrstu klukkustund eftir fæðingu) er að mestu girt fyrir hættu á sjúkdómnum. Það sem gerist er þetta: Kólísýkl- ar berast með óhreinindum ofan í lambið nýfætt (á undan broddi) og : komast lítt hindraðir ofan í mjógöm j þar sem þeim ijölgar fyrst en deyja síðan. Eitur þeirra dauðra losnar úr j læðingi og lamar hreyfingar gama. | Afleiðing er lystarleysi og hungur- dauði eða blóðeitrun, líffærabilun og dauði. Lömbin veikjast oftast 12-48 klst. gömul, verða dauf og hætta að sjúga. Innan klukkustund- ar fara þau að slefa (glær, slím- kennd) og „gráta”. Loft safnast í belginn („gutlbelgur”). Lömbin deyja á 6-24 klst., sé ekkert gert. Að lækna er erfiðara en að fyrir- byggja og varla er á færi annarra en snillinga að hjúkra mörgum lömb- urn svo að fullt gagn verði að. Snillingar em að vísu margir á Is- landi. Hefjist lækning snemma má bjarga a.m.k. 85% veikra lamba með eftirfarandi aðferðum: Koma þarf í veg fyrir að lömbin svelti. Halda þarf í skefjum sýklavexti í gömum og hindra blóðeitrun þar til hreyfingar garna eru eðlilegar. j Gefið lömbunum daglega fúkaklyf, gefið þeim alls ekki mjólk heldur 100-200 ml af sykur/saltupplausn þvisvar sinnumádag. Búiðvelum það hjá móður sinni nema það sé mjög veikt, haldið áfram þar til lambið sýgur eðlilega á ný. Með ýmsum aðgerðum má draga úr hættu á slefsýki. Sótthreinsið húsin árlega, hafið loftræstingu góða, þrífið burðar- stíur eftir hverja á, þrífið gerði. Varist þrengsli, meiðsli og hættur fyrir lömbin. Fylgist með því að hvert lamb komist fljótt á spena. Takið á júgrinu og í spena og trygg- ið að broddur sé nægur og ekki júg- urbólga (saltbragð af broddmjólk). Gefið þeim lömbum brodd með magaslöngu sem sjúga ekki. Ef bætt umhirða dugar ekki má íhuga fyrirbyggjandi lyfjagjöf (tafla, hylki eða sprauta í munn), þótt slíkt sé ekki vistvænn búskapur. Gangið úr skugga um að lambið kyngi öll- um skammtinum. Hvanneyrarveiki (votheysveiki) Hvanneyrarveiki eða votheys- veiki er sýking sem hér á landi er algengust í fullorðnu fé. Hún veldur oft skemmdum í miðtaugakerfi og lömunum, en fósturlát og melting- arkvillar ýmiss konar sjást ósjaldan af völdum þessa sýkils (Listeria monocytogenes). Stundum verður sjúkdóms þessa vart í unglömbum, annað hvort vegna þess að lömbin fæðast með veikina, hafa smitast í móðurkviði, eða þá að þau smitast úr moði eða heyrudda, sem borinn hefur verið undir æmar, einkum þegar sauðburður fer fram á húsi. Unglömb, sem veikjast af vot- heysveiki, em oft mjög dauf, hafa hita, em móð og liggja mikið. Við krufningu má oft greina þennan sjúkdóm þar sem honum fylgja oft sérkennilegar gráleitar örður í lifur, milti og jafnvel lungum. Reyna má sýklalyf til að lækna unglömb með votheysveiki. Liðastirðnun Liðastirðnun í unglömbum valda rauðsýkisýklar (Erysipelothrix 44- FREYR 5-6/99

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.