Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 12
Ráðunautafundur 1999
Athugun
á tækni við skurðahreinsun
Inngangur
í eftirfarandi pistli er ætlunin
að Qalla nokkuð um hvaða tæki,
aðferðir og tækni koma til álita
við að endurbæta framræslu á
ræktunarlöndum. Ekki verður
ijölyrt um nauðsyn góðrar fram-
ræslu og afleiðingar þess að
henni er ekki viðhaldið. Um það
efni er tiltækur mikill fróðleikur
og hefur reyndar oft á ráðunauta-
fundum verið fjallað um þann
þátt ræktunarstarfsins. Ekki eru
aðgengilegar tölulegar upplýs-
ingar um hve mikið magn talið í
hekturum eða lengdarmetrum er
þörf á að hreinsa eða endurbæta.
Hér verður þó út frá ýmsum
gögnum varpað fram að tún í
ræktun séu um 115 þús. hektarar
og að um 70% þeirra séu á fram-
ræstu landi. Ennfremur er gert
ráð fyrir að hverjum hektara til-
heyri um 300 m langur skurður.
Þessar forsendur leiða til þess að
lengd skurða á ræktuðu landi sé
um 24.650 km. Flestir þessir
skurðir eru komnir til ára sinna
og hreinsun undanfarin ár hefur
1. mynd. Skipting tíma við hreinsun á
skurði þar sem botn er hreinsaður og
tekið ofan af öðrum bakka, tími í
mínútum og %.
eftir Grétar Einarsson og Eirík Blöndal
Rannsókna- stofnun landbún- aðarins, bútækni- sviði
verið í algjöru lágmarki. Þá hefur
því einnig verið slegið fram að
nýgröft þurfi að hreinsa eftir
12-15 ár og endurhreinsun þurfí
að fara fram með 8-10 ára bili.
Framangreindar tölur undirstrika
því ótvirætt að ætli menn að
halda núverandi ræktun í horfinu
er mjög þýðingarmikið að velja
heppilega tækni til þess, en í því
sambandi eru ýmis ný viðhorf út
frá tæknilegu sjónarmiði sem
skoða þarf vandlega. í eftirfar-
andi umfjöllun er ætlunin að
viðra ýmsar hugmyndir sem hafa
verið í umræðunni að undan-
förnu.
Magntölur varðandi
skurðahreinsun
Hreinsun á framræsluskurðum
hefur urn nokkuð skeið verið til
athugunar hjá Bútæknideild
RALA í samvinnu við Bænda-
skólann á Hvanneyri og með til-
styrk Framleiðnisjóðs. Sumarið
1996 og 1997 voru gerðar athug-
anir með tæknibúnað og jafn-
framt gerðar mælingar á magntöl-
um við hreinsun á 10 ára gömlum
skurðum. Þar kom fram m.a. að á
lengdarmetra var botnhreinsunin
0,16-0,3 m3, þ.e.a.s. að hæfilegt
reyndist að hreinsa um eitt fet úr
skurðbotninum. Úr hliðum skurð-
anna kom um 0,3-0,4 m3 og væri
tekið ofan af skurðbakkanum
reyndust það vera um 0,24-0,45
m3. Alls reyndust þetta vera um
0,7-1,15 m3 á lengdarmetra til að
ná eðlilegum halla fyrir rennsli
og bakkanum nokkuð niður. Lík-
legt er að magntölurnar endur-
spegli nokkuð aðstæður þegar
komið er að eðlilegu viðhaldi
skurðanna, en þær hækka að
sjálfsögðu eftir því sem lengri
tími líður umfram eðlilegt við-
hald.
Hreinsun með
skurðgröfu
Haustið 1997 var á vegum Bú-
tæknideildar gerð lausleg athugun á
vinnubrögðum ATLAS 1302 (15,5
tn) skurðgröfu í samvinnu við Jörfa
hf. á Hvanneyri. Mælingamar voru
gerðar m.a. vegna þess að verið var
að reyna tæki til dreifingar á búíjár-
0,6
Losa í vagn
7%
0,8
Grafa af bakka
Snúa gröfu
38%
2. mynd. Tíðni aðgerða (mín og %>).
Vinna vió að hreinsa skurði, botn
hreinsaður og tekið ofan af öðrum
bakka.
12 - FREYR 7/99