Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 33

Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 33
Sögubrot r þessar grein er sagt frá hug- myndum um lífrænan landbún- að og nokkrum frumkvöðlum á því sviði. I Evrópu hefst umræðan um líf- ræna ræktun á seinni hluta nítjándu aldar. Þá er farið að setja fram hug- myndir um kosti búfjáráburðar um- ffam tilbúins áburðar sem lítillega var farið að nota þá miðað við það sem seinna varð. Bretinn George Vivian Poore setti ffam hugmyndir árið 1893 um langtíma áhrif búijáráburðar sam- anborið við tilbúinn áburð í bók sinni „Rural Hygine“, þær byggði hann á viðtölum sínum við bændur sem miðluðu honum af reynslu sinni við ræktun. Poore var læknir að mennt og taldi að sterk tengsl væru á milli frjósemi jarðvegs og heilsu manna. Hann benti einnig á að mikil verðmæti í næringarefhum fælust í skólpi frá bæjum og mætti að nota það í landbúnaði, einnig fjallaði hann um mikilvægi moldar- efna í jarðvegi og að ekki mætti ganga á þau. Poore taldi einnig að hagsmunum landbúnaðarins væri fómað fyrir skammtímahagsmuni iðnaðar og frjálsrar verlsunar. Hugmyndir og reynsla í lífrænum landbúnaði hafa komið víða að. Bandaríski jarðvegsfræðingurinn F. H. King gagnrýndi landbúnaðar- aðferðir í heimalandi sínu. Arið 1907 ferðast hann til Kína, Japan og Kóreu. Eftir þá ferð skrifar hann bókina „Farmers of Forty Centur- ies“, þar segir hann frá kynnum sín- um af asískum ræktunaraðferðum og hvemig bændum þar hafði tekist að halda jarðvegi frjósömum í þús- undir ára og hvemig hægt var að fæða ijölda fólks á minna landi en í Bandaríkjunum. Grunnurinn að þessari fijósemi var sú einfalda aðferð að halda næringar- eftir Hrafnlaugu Guðlaugs- dóttur, Bænda- skólanum á Hvanneyri efnum inni í hringrásinni og öllu var skilað aftur til jarðvegsins, einnig skólpi frá mannabústöðum. Hann hafnaði þeirri skoðun að þetta væri gert vegna vanþekkingar, heldur taldi hann þetta vera reynsluvísindi sem hefðu sýnt sig að vera hið rétta og best fyrir landið og fólkið. Hann taldi þessa bændur vinna mjög skipulega og markvisst í búskap sínum. Bretinn Albert Howard var fyrsti landbúnaðarlfæðingurinn sem út- skrifaðist frá háskólanum í Cam- bridge. Hann var bóndasonur, fæddur 1873. Howard starfaði lengi á Ind- landi við að þróa safhhaugagerð og ræktunaraðferðir fyrir þarlenda bænd- ur. Hann sótti mikið af þekkingu sinni til bænda á Indlandi og sá að betri nýting á húsaskólpi væri nauðsynleg til að jarðvegur fengi næringu í því héraði þar sem hann vann. Hann taldi fyrirbyggjandi aðgerðir í ræktun mikilvægastar í baráttunni við plöntu- og dýra- sjúkdóma. Heil- brigður jarðvegur var að mati hans undirstaða heilsu manna, plantna og dýra og búfjár- áburður væri lykill- inn að frjósemi jarðvegs. A efri árum ferðaðist Ho- ward um heiminn og kynnti land- búnaðarfólki safnhaugagerð og meðal annars löndum sínum, Englend- ingum. Einnig átti hann þátt í að bæta hag kaffiræktenda í E1 Salvador sem tóku upp aðferðir hans. Skoðanir hans á menntun landbúnaðarvísindamanna vöktu einnig athygli en hann taldi það grundvallaratriði að hafa verið í sveit sem bam til að geta skilið landbúnað og útskýrt hann. Rannsóknir á mataræði í Indlandi Tengsl heilbrigðis, fæðu og fram- leiðsluhátta vom aðal viðfangsefni breska læknisins Robert Mc Carri- son. Hann rannsakaði kynþætti Sikh, Hunza og Pathani á Indlandi. I bók sinni “Studies in Deficiency” frá 1921 veltir hann því fyrir sér hver sé leyndardómurinn á bak við andlegt og líkamlegt heilbrigði þessara kynþátta. Hann bjó á meðal þeirra í sjö ár og helstu kvillar sem þjáðu Evrópubúa voru óþekktir meðal þeirra, auk þess að þeir bjuggu yfir miklum andlegum og líkamlegum styrk. Lifrænt rœktað grœnmeti af ýmsu tagi. (Ljósm. Ólafiir R. Dýrmundsson). FREYR 7/99 - 33

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.