Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.06.2002, Qupperneq 2

Freyr - 01.06.2002, Qupperneq 2
Molar Aukin VÖLD VERSLUNARINNAR Samþjöppun smásöluverslunar með matvæli á sér víða stað um hinn vestræna heim um þessar mundir. Stórar verslanakeðjur fá sífellt stærri markaðshlut á kost- nað hinna minni og sérverslana. Mest er þessi samþjöppun í Svíþjóð, þar sem þrjár verslana- keðjur hafa samtals 95% mark- aðshlutdeild, en í Finnlandi er þetta hlutfall 80%. Stærstu versl- anakeðjur með matvæli í heimin- um um þessar mundir eru í Bandarikjunum, en þar er jafn- framt stærsti heimamarkaðurinn. Stærsta keðjan þar, Wal-Mart, er með veltu upp á 2000 milljarða evra, (Evran er um 80 ísl. kr.). Til samanburðar er velta stærsta matvælaframleiðenda heims, Nestlé, rúmlega 50 milljarðar evra. Markaðsyfirburðir verslanakeðj- anna veldur matvælaiðnaðnum vanda sem lýsir sér í því að við- skiptaaðilar hans eru fáir og gera mikla kröfur til iðnaðarins. Þannig krefjast verslanirnar m.a. þess að matvælafyrirtækin taki þátt í auglýsingakostnaði við vörurnar. Annað vandamál fyrir matvæla- iðnaðinn er að verslanakeðjurnar koma sér upp sínum eigin vörumerkjum, svokölluðum “Private labels”. Með því móti tekst þeim að þrýsta enn frekar niður verði til framleiðenda. Neytendur taka einkavörumerkj- unum sem “ódýrum og góðum” og framleiðendur geta ekki haldið uppi verði í þeim eins og sínum eigin vörumerkjum. En þróun í verslun með matvæli er ekki lokið með því að stórar keðjur hafi náð henni á sitt vald. Mann telja sig skynja þróun sem er í gangi í matarvenjum fólks. í Afmæliskveðja Slgurður Blöndal, lyrrv. skógræktarstjórl, 70 ðra, 3. nóvembar 1994 Þar eru lerki- og víðivaxnir reitir sem vitna um þann sem reykti pípu nóg. Sigurður þessi höfðingsmaður heitir og horfir inn í fljótsins dreymnu ró. Ég fiinn það æ að frœndgarð vorn þú skreytir, fegursta tréð í Hallormsstaðarskóg. Ifijótsins djúpi liggur langur skolli, lætur sig engu skipta hagamús. Um skógargöngu góðvinurinn hotli gleður sig við að drekka lögg af krús. Og lands vors tré þau hrosa og kinka kolli, við karlinn erufyrir löngu dús. Halldór Blöndal. stað þess að elda mat heima vil neytandinn fá tilbúna rétti eða mat sem einungis þarf að hita í örbyl- gjuofninum. Slíkur matur er ekkert endilega seldur I stórmörkuðunum heldur alveg eins á veitin- gastöðum með harðrétti. Innlendur matvælaiðnaður er háður bændum í heimalandinu og öfugt. Verslunin er aftur á móti ekki á sama hátt háð innlendum bændum og framleiðslufyrirtækj- um. Matvælaiðnaðurinn og bænd- ur geta þannig snúið bökum sam- an gagnvart versluninni. Styrkur verslunarinnar er hins vegar nálægðin við neytandann. Hún gefur hins vegar ekki vörunni þá tryggingu fyrir vönduðum fram- leiðsluaðferðum sem neytendur spyrja nú um í vaxandi mæli. Við hliðina á verðinu verður það æ mikilvægara að varan sé innlend og framleidd á umhverfisvænan og siðferðilega boðlegan hátt. Bændur og matvælaiðnaðurinn hafa þar tromp á hendi til að byggja upp framleiðslu og setja á markað matvæli, sem neytendur vilja kaupa, óháð því hvort það er stórmarkaður eða veitingastaður sem selur þau. (Landsbygdens Folk nr. 21/2002). Prófessor í DÝRAVERND Svíar hafa fengið fyrsta prófess- or sinn í dýravernd. Hún heitir Linda Keeling og starfar við Land- búnaðarháskóla Svíþjóðar með aðsetur í Skara og einnig í Upp- sölum. Hún og samstarfsmenn hennar hafa m.a. rannsakað hegðun og þarfir varphæna. Niðurstöður þeirra rannsókna ruddu braut fyrir breyttum reglum í Svíþjóð um hænsnahald í búrum. (Bondebladet nr. 23/2002). | 2 - Freyr 5/2002
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.