Freyr - 01.06.2002, Síða 15
hann hefur góðar útlögur og
feikilega góða og vel lagaða
vöðva í afturparti. All er sonur
Læks 97-843 og afkomandi
Hörva 92-972 í móðurætt. Lóði
00-871 er í átaki sem saman-
þjappað kjötstykki, hann er feiki-
lega þéttvaxinn með einstaklega
þykkan bakvöðva, fremur stuttar
malir, en mjög þykkan lærvöðva,
hann er nokkuð skapharður og
ullin er mikið sett gulum hárum.
Þessi hrútur er skyldleikaræktað-
ur afkomandi Hörva 92-972.
A sýningu í Reykholtsdal var
hæst dæmdur Haukur 00-145 á
Kópareykjum en hann er frá
Vatnsenda í Skorradal og undan
Sekk 97-836. Haukur er með
öflug lærahold, auk þess að hafa
hvelfdar og góðar útlögur eins
og margir sona Sekks. Hamar
00-205 undan Mjölni 94-833 og
Balli 00-207 Sekksson (97-836)
eru báðir frá Kjalvararstöðum
og komu næstir í röðun á
sýningu. Balli mældist með
þykkan og vel lagaðan bakvöð-
va, auk þess að hafa ágæt læra-
hold eins og Hamar en sá síðar-
nefndi stóð framar með mala-
hold og útlögur.
I Lundarreykjadal voru þrír
efstu hrútamir á sýningu þar und-
an Prúð 94-834. Allir skáru þeir
sig úr fyrir vel lagaðan bakvöðva
og ágæt lærahold, sérstaklega
Biti 00-251 frá Gullberastöðum
sem valdist í fyrsta sæti í röðun.
Hinir tveir Prúðssynimir em
Glæsir 00-161 frá Skarði og 00-
147 ffá Oddsstöðum.
Hjalti Sigurbjömsson á Kiðafelli með Topp 00-001. (Ljósm. Lárus G Birgisson).
Mýrasýsla
Mikið sýningarhald var í sýsl-
unni því að samtals vom sýndir
146 hrútar og af þeim vom 138
veturgamlir. Veturgömlu hrútamir
vom umtalsvert vænni en jafn-
aldrar þeirra sunnan Hvítar eða
81,5 kg að meðaltali, en sérstak-
lega voru hrútar í Hvítársíðu ríg-
vænir. Þetta var þrautvalinn hóp-
ur því að 127 þeirra, eða 92,0%,
fengu I. verðlaun.
I Hvítársíðu vom sýndir all-
margir vemlega góðir hrútar og
komu kollóttir hrútar þar meira
við sögu en áður. Snjólfur 00-
565 frá Þorgautsstöðum II bar þar
af öðmm en hann er hreinhvítur,
sívalur, fremur langur og jafn að
annarri gerð, fyrir utan lærahold-
in sem skara fram úr. Þessi hrútur
er undan Dal 97-838 eins og tveir
aðrir athyglisverðir hrútar frá
Þorgautsstöðum I, þeir Drjóli 00-
602 og Njóli 00-601. Synir Prúðs
94-834 skipuðu sér einnig í hóp
Stöpull 00-567 á Þorgautsstöðum I i Hvitársíðu. (Ljósm. Lárus G. Birgisson).
Freyr 5/2002-15 |