Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2002, Síða 24

Freyr - 01.06.2002, Síða 24
kattlágfættur með sívalan bol og frábær hold á baki, á mölum og í lærum en ull er gölluð. Hlaut hann einnig 84,5 stig samtals. I fyrrum Glæsibæjarhreppi var settur efstur Þokki 00-209 á Neðri- Vindheimum frá Ytri-Bægisá, undan Reka 96-120 og nr. 95-064. Þokki hefur mikla ffambyggingu og er ágætlega holdfylltur hvar sem á er tekið. Hlaut hann alls 83,5 stig. Annar i röð og með sama stigafjölda var Spakur 00- 207 á Neðri-Vindheimum, undan Fána 98-201 og nr. 95-300. Hann hefur gríðarlega miklar útlögur, ágæt bakhold og hreinhvíta ull. A Akureyri í búi Ama Magnús- sonar reyndist vera sá einstakl- ingur sem hæst stigaðist allra vet- urgamalla hrúta á búnaðarsam- bandssvæðinu. Var það Prúður 00-693, undan Mola 99-691 og Breiðleit 96- 286. Föðurfaðir Prúðs er Lokkur 98-688 en hann dæmdist bestur hrúta í Eyjafírði haustið 1999 og faðir Lokks, Hnöttur 96-684, dæmdist bestur 1997. Móðir Prúðs, Breiðleit, á ættir að rekja til Kokks 85-870 og Kalda 82-899, auk þess að vera í gegnum fjárstofn Ama ná- skyld Lokki 98-688 sem gerir Prúð nokkuð skyldleikaræktaðan. Prúður hefur feikilega miklar út- lögur, mjög holdfylltar malir, ffá- bær lærahold og hefur mikla hreinhvíta ull. Hann hlaut samtals 86,0 stig eða það sama og hann hlaut sem hæst dæmdi lambhrút- ur á svæðinu haustið 2000. í Eyjafjarðarsveit stigaðist hæst Gnýr 00-062, Staóarbakka, Hörgárbyggð, Eyjafirði. (Ljósm. Ólafur G. Vagnsson). frá Staðarbakka undan Óðni 97- 754 og Þmmu 97-733. Drengur er mjög lágfættur og hefur miklar útlögur, breitt spjald og fram- úrskarandi holdfyllingu um herð- ar, á baki, mölum og í lærum. Ull er hins vegar mjög gulkuskotin. Drengur hlaut alls 85 stig og var í öðm sæti á búnað- arsambandssvæðinu. í öðm sæti í sveitinni var Oddur 00-066 á Staðarbakka, undan Hrafni 99-022 og Oddu 97-756. Oddur hefur framúrskarandi hold á baki, möl- um og í læmm og hlaut alls 84,5 stig. I þriðja sæti var Gnýr 00-062 á Staðarbakka en hann er albróðir Drengs á Þúfnavöllum. Gnýr er Drengur, Þúfnavöllum, Hörgárbyggð, Eyjafirði. (Ljósm. Ólafur G Vagns- son). | 24 - Freyr 5/2002

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.