Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.2002, Side 40

Freyr - 01.06.2002, Side 40
507 á Smáhömrum en sérstaklega voru yfirburðir hans hjá slátur- lömbunum mjög skýrir þar sem flokkun bæði fyrir gerð og fítu var mjög jákvæð. Um leið kom hann með mjög hagstæða niður- stöðu úr mati á lifandi lömbum. Sónar er nú á stöðinni í Laugar- dælum þar sem hann hefúr núm- erið 97-860. Boli 99-610 á Hey- dalsá gaf ákaflega jafngóð og vel gerð lömb. Undan honurn voru valin fleiri hrútlömb til ásetnings en undan öðrum hrútum þannig að útkoma hans var í raun mun glæsilegri en tölulegar niðurstöð- ur úr slátrun gefa til kynna. Boli er nú á stöð í Borgamesi og hefur númer 99-874. Arfi 99-609 á Heydalsá var með þrælöflugan lambahóp, vænan með jafha og góða gerð og var hann á gmnd- velli prófúnar tekin til notkunar á stöð og er nú í Borgamesi með númerið 99-873. Glæsir 98-205, Broddanesi, sýndi feikilega glæsilegar niðurstöður fyrir slát- urlömb, en hann kom tæplega eins sterkur og framanefndir hrútar út úr ómmælingum lamba. Glæsir er hins vegar tvímælalaust ákaflega verðugur kandídat á sæðingarstöð eftir þær glæsilegu niðurstöður, sem fyrir hendi eru um afkvæmi hans, en hann var ekki falur til slíkra nota síðastlið- ið haust. Á Melgraseyri var Stjáni 99-386 langefstur með 140 í heildareink- unn, en yfirburðir hans vom mjög miklir í kjötmati, bæði í betri gerð en undan hinurn hrútunum og jafnhliða vemlega minni fitu. Á Laugalandi var hrútur 99-150 með 124 í heildareinkunn, einkum vegna yfirburða í kjötmati. Á Melum I vom margir hrútar í prófun og yfirburðir hjá Mola 99- 095 í kjötmati voru einhverjir þeir mestu sem sáust haustið 2001 þar sem hann var með 193 í einkunn, en heildareinkunn hans í rannsókninni var 141. Lömb und- an Mola vom þó heldur léttari en undan öðmm hrútum í þessari rannsókn. Moli er sonur Sels 93- 707 sem þekktur var á sinni tíð sem mikill glæsigripur en dóttur- sonur Rindils 97-028. Nagli 98- 064 sýndi einnig, líkt og árið áð- ur, prýðisútkomu og var með 121 í heildareinkunn en hann er sonur Rindils 97-028. í Steinstúni var á toppinum Glói 99-113 með 122 í heildar- einkunn. Hans sterkasti punktur var gott fitumat. Þessi hrútur er afkomandi Brimils 93-728 í Krossnesi. í Krossnesi var Srnári 00-127 í efsta sætinu með 130 í heildar- einkunn en þessi öflugi hrútur er undan Basta 97-037 sem skipaði toppinn árið áður en hann var Bassastaðahrútur, sonur Prúðs 92-278. í Odda vom yfirburðir hjá Klaka 98-069 en hann var með 135 í heildareinkunn. Hrútur þessi er frá Hafnardal, sonur Spóns 94-993. í hrútahópnum á Bassastöðum vom feikilegir yfirburðir í kjöt- mati hjá Nóa 00-278 þar sem hann var með 145 og 121 í heild- areinkunn. Hrútur þessi er sonur Stúfs 97-854 en móðir hans dóttir Prúðs 92-278, sem löngu er landsþekkt kynbótakind. Bati 99-418 á Geirmundarstöð- um staðfesti ágæti sitt ffá fyrra ári nú með 124 í heildareinkunn, en hrútur þessi er sonur Prúðs 92-278 á Bassastöðum. Á Stað var á toppinum Ári 00- 429 með 126 í heildareinkunn, með hóp afbragðs sláturlamba. Þessi hrútur er fenginn norðan frá Melum I og er sonur Hnykks 95- 780. Dropi 99-412 átti einnig ágætan hóp með 120 í heildar- einkunn en faðir hans, Dalur 07- 380, stóð efstur í sams konar rannsókn haustið 1999. Á Stakkanesi var hrútur 00-457 langefstur með 130 í heildareink- unn en sérstaklega vom glæsileg- ar niðurstöður fyrir lömb undan honum fyrir kjötmat um gerð. Hrútur þessi er frá Bassastöðum, sonur Prúðs 92-278, en móður- faðir er Nökkvi 91-665. í Miðdalsgröf stóð langefstur Bangsi 00-627 með 133 í heildar- einkunn, en þessi hrútur var að skila afbragðsgóðum sláturlömb- um. Hann er undan Badda 99-582 sem stóð sig með prýði í prófún á síðasta ári en hann er ffá Bassa- stöðum sonur Prúðs 92-278. í Felli staðfesti Bangsi 99-234 yfirburði sína frá árinu áður nú með 137 í heildareinkunn, en þessi ágætishrútur er eins og margir aðrir toppar af ættboga Þyrils 94-399 á Heydalsá. Upp að hlið hans kom síðan Safír 00-236 með 136 í heildareinkunn en sá hrútur er frá Steinadal undan hrút 99-137 og því einnig beinn af- komandi Þyrils. Glæsir 98-205 var í sameigin- legri afkvæmarannsókn hrútanna heima í Broddanesi hjá Jóni þar sem hann bar mikið af hinum hrútunum, fékk 157 í heildareink- unn og þar af 172 úr kjötmats- hluta. Líkt og árið áður voru yfir- burðir hjá Bjarti 97-599 á Valda- steinsstöðum feikilegir en hann hlaut að þessu sinni 137 í heild- areinkunn. Þessi toppkind er fengin frá Broddanesi. Hjá Gunnari og Þorgerði í Bæ stóð efstur Höfði 99-580 með 121 í heildareinkunn og jafn fyrir báða þætti rannsóknar. Hrútur þessi er úr Skálholtsvík, undan Ljóma 97-498. Á Kolbeinsá var það Brassi 98- 548 sem sýndi verulega yfirburði með 126 í heildareinkunn, jafii á báðum þáttum í rannsókn. Þessi hrútur er frá Bassastöðum, sonur Prúðs 92-278. j 40 - Freyr 5/2002

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.