Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2002, Page 64

Freyr - 01.06.2002, Page 64
1. mynd. Erfðaframfarir í fituþykkt á síðu, flatarmáli bakvöðvans og fall- þunga 1978-96. 78 79 80 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 Ár 2. mynd. Erfðaframfarir 1978-96. Blup-lausnir á skala með meðaltal 100 og staðalfrávik 10. 3. mynd. Hlutun skrokksins. greining, þ.e. hver eiginleiki keyrður einn í einu. Niðurstöður uppgjörsins eru sýndar í 2. töflu og á 1. og 2. mynd. Niðurstöðumar sýna að úrvalið hefur tvímælalaust skilað árangri og fer hann hratt vaxandi frá 1990, enda markviss unnið að tímgun einstaklinga með hæfi- leika til litillra fitu- og mikillar vöðvasöfh-unar, einkum af Strammaættinni. Yfir 19 ára tímabil, frá 1978 til 1996, hefur fituþykkt á síðu minnkað um 1,42 mm og flatarmál bakvöðv- ans stækkað um 1,19 cm2. Hlut- fallslega mun láta nærri að flatar- mál vöðvans hafi aukist um 9% og fituþykktin minnkað um 15% miðað við meðaltal eiginleikanna yfír tímabilið. Hins vegar er erfðaframfor í fallþunga minni, eða um 200 g á tímabilinu, sem hlutfallslega nemuru.þ.b. 1,3%. Sá árangur verður þó að teljast vel viðunandi, þar sem hér er um að ræða eiginleika með tiltölu- lega lágt arfgengi, sem árferði og umhverfi hefur mikil áhrif á, en auk þess hefur úrvalsþrýstingur- inn á fallþungann ætið verið minni en á hina þættina. Á 1. og 2. mynd eru erfðafram- farimar sýndar á tvennan hátt, annars vegar efir BLUP-lausnum (kynbótamati) og hins vegar yfir- færðar á skala, þar sem meðaltal- ið er 100 og staðalfrávikið 10. Auðséð er að framfarimar taka stóran kipp frá 1988. Þannig er hallastuðul kynbótamats fyrir síðufitu árin 1988-96 2,3 sinnum hærri og á flatarmáli bakvöðvans 3,2 hærri en fyrir tímabilið þar á undan. Á þeim forsendum má því gera ráð fýrir að það taki um 8 ár að minnka síðufituþykktina um 1 mm og stækka flatarmálið um 1 cm2. Hin rökrétta skýring á þes- sum aukna framfarahraða er sterkara og markvissara úrval fyrir þessum eiginleikum vegna tilkomu ómsjárinnar 1990, en frá þeim tíma hafa öll lömb búsins verið ómmæld og allur ásetn- ingur búsins valinn með tilliti til þykktar bakvöðvans og fitunnar yfír honum. Ennfremur skal bent á að frá 1991 verða árasveiflur minni og jafnari stígandi í fram- forum allra þátta, sem rekja má til betra viðurværis, bæði í hús- vist, með tilkomu nýju fjárhús- anna, og ekki síst vegna bættrar fóðrunar vegna meiri heygæða og kann hér að gæta áhrifa samspils erfða og umhverfis. Freistandi er að reyna að gera sér grein fýrir hvaða áhrif erfða- framfarimar á flatarmáli bak- | 64 - Freyr 5/2002

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.