Litli Bergþór - 01.12.1988, Page 4
Kveðja frá Skarphéðni
Björn B. Jónsson.
Kæru ungmennafélagar.
Nú eru liðin 80 ár frá stofnun
Ungmennafélagsins í Biskupstungum.
Af því tilefni vil ég senda stjórn og
félagsmönnum í Umf. Bisk. ámaðaróskir
og góðar kveðjur frá stjórn H.S.K.
Allt frá stofnun hafa ungmennafélög
haft mismunandi áherslur í starfi sínu.
Umf. Bisk. ereittaf þeim fáufélögum sem
hefur haldið uppi blómlegri leiklist allar
götur frá fyrstu starfsárum sínum, að un-
danskildum smáhléum. Þessi þáttur í
sögu Ungmennafélagsins heldur merki
þess hátt á lofti ekki síður en íþróttir,
skógrækt, útgáfustarf og fl. liðir í
starfseminni.
Það sem hefur einna helst gert það að
verkum að ungmennafélagshreyfingin
hefur haldið velli er h ve vel hefur tekist að
brúa kynslóðabilið innan félaganna. Það
er ekki alveg víst að það Tungnafólk sem
stofnaði Umf. Bisk. fyrir 80 árum hefði
trúað því að árið 1988 stunda nánast allir
aldurshópar íþróttir meira og minna eða
hvað þá að uppi væri vakning miðaldra og
eldra fólks um heilsuleikfimi.
Það hefur verið stór liður í starfi Umf.
Bisk. að halda sameiginlega mannfagnaði
og íþróttamót með nágrannafélögunum
ogverðurþaðvonandiumókominár. Það
styrkir félagið og samheldnina innan
þess. Eins er það mikils virði fyrir samtök
eins og H.S.K. að félög innan vébanda
þeirra haldi uppi góðu samstarfi við önnur
félög innan hreyfingarinnar.
Að öllu framansögðu ber að þakka
Umf. Bisk. fyrir gott innlegg í fjölbreytt
íþrótta- og félagslíf Sunnlendinga með
ósk um farsæla framtíð. Að lokum vil ég
þakka fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum
árum.
Með félagskveðju.
Bjarnabúb Brautarhóli
SÍMI 98-68999
BENSÍN, OLÍU- 0G FERÐfiUÖRUR.
MHTUÖRUR.
EINNIG ÖL, TÓBflK, SŒLGFETI 0G VMISLEGT FLEIRfl.
UIDEOLEIGfl, LUKKUMIÐflR 0G L0TT0 5/38.
p 1. iúní - 31. áaúst: 10-12 og 13-22 alla daga.
[j 1. sept - 31. maí: 10-12 og 13-18 mánud. - föstud.
11-12 og 13-18 laugard. - sunnud.
Gœíðs/ukortaþjónusta.
Verið velkomin. Erum ávallt í leiðinni.
Litli Bergþór
4