Árbók VFÍ - 01.06.1992, Síða 16
14 Árbók VFÍ 1991/92
mjög vel. Innheimta álagðra félagsgjalda á hverju ári verið vel yfir 90% og restin skilað sér á
næsta ári.
Gerð var ítarleg úttekt á fjárhagsstöðu félagsins og samanburður gerður á félagsgjöldum
okkar miðað við önnur félög háskólaborgara.
Línuritið á mynd 2 sýnir að fjárhagsleg staða félagsins þann 31. ágúst 1991 var eðlileg mið-
að við þann þrönga fjárhagslega stakk sem VFI er búinn. Fjármál félagsins hafa tekið stakka-
skiptum á síðustu þremur til fjórum árum.
5 Skrifstofa VFÍ
Framkvæmdastjóri VFI er Ambjörg Edda Guðbjömsdóttir og henni til fulltingis er Guðríður
Ó. Magnúsdóttir. Löggiltur endurskoðandi er sem fyrr segir Kristinn Gestsson. Þessi þrjú vinna
kappsamlega að því að halda þeirri reglu á rekstri skrifstofunnar og félagsins, sem fyrrgreind
línu- og súlurit sýna og sanna að verið hefur síðastliðin ár, eða frá því að bókhaldslyklar og
bókhald allt var endurskilgreint fyrir um þremur árum, þegar Arnbjörg, Guðríður og Kristinn
tóku við störfum fyrir VFI í ársbyrjun 1989. Bókhald er fært jafnóðum þannig að unnt er að fá
stöðu félagssjóðs og hússjóðs eftir hver mánaðamót, samanber framlagt bráðabirgðaruppgjör á
aðalstjórnarfundi sem nefnt hefur verið. Þetta hefur gert allt eftirlit með stöðu fjármála mun
auðveldara. Utistandandi skuldir eru greiddar á gjalddögum og misfærslur eldri tíðar heyra
nánast sögunni til. Innheimtumálum er sinnt jafnt og þétt. Til marks um það voru útistandandi
árgjöld um áramótin 1990/91 um 2,2 m.kr. en um áramótin sfðustu voru útistandandi árgjöld
um 2,1 m.kr. í ársbyrjun 1989 voru útistandandi um 5,6 m.kr. þannig að félagið var í veruleg-
um vanskilum með skuldbindingar sínar.
Innheimt félagsgjöld á árinu fóru yfir 90% sem er mjög gott. Einsdæmi segir endurskoðand-
inn og endurtekur sig frá fyrra ári. Skuldalisti lá frammi á aðalfundi í mars 1992 en hann prýða
nöfn um 6% fullborgandi félagsmanna, aðrir hafa staðið í skilum eða um 94%.
Framkvæmdastjórn lá undir þeim ámælum frá félagsmönnum sem alltaf stóðu í skilum að
harðar þyrfti að taka á innheimtuaðgerðum varðandi þá sem ekki greiddu gjöld sín á réttum
tíma. Þriðja árið í röð hefur framkvæmdastjórn gert það sem hægt er til að fullnægja réttlætinu,
leggur á vexti og sendir áfram í lögmannsinnheimtu ef skuld er komin fram yfir tvö ár, eins og
félagslög reyndar segja að gert skuli. I lögmannsinnheimtu eru tveir félagsmenn frá fyrri tíð og
að því er best verður séð verður lögmanni falið að sjá um innheimtu hjá einum eða tveimur í
viðbót.
Skrifstofan sér um daglegan rekstur félagsins og sinnir almennum skrifstofustörfum fyrir
framkvæmdastjóm. Þess utan er leitast við að sinna eins miklu og unnt er, af þeim störfum sem
deildir, nefndir og gerðardómur hafa óskað eftir. Slík þjónusta hefur aukist mikið og færst
sífellt í vöxt. Margir leíta til skrifstofunnar og reynt hefur verið að liðsinna öllum sem þangað
leita, hvort heldur erindið er aðstoð við bréfaskriftir, úthringingar, útsendingu fundarboða,
upplýsingaöflun eða ósk um að sitja nefndarfund og jafnvel að færa fundargerðir, sem að,
undanskyldum framkvæmdastjórnarfundum er reyndar ekki í verkahring framkvæmdastjóra.
Talsvert er um að námsfólk snúi sér til skrifstofu með fyrirspurnir um skóla erlendis og
námskröfur sem gerðar eru til verkfræðimenntunar.
Framkvæmdastjóri lét bóka eftir sér á framkvæmdastjórnarfundi nú fyrir stuttu að sl. þrjú ár
hefði starfsfólk skrifstofu lagt á sig ómælda yfirvinnu félaginu að kostnaðarlausu og þar með
gefið a.m.k. andvirði hálfs starfskrafts ef ekki meira. Framkvæmdastjóri tók fram að ekki væri