Árbók VFÍ - 01.06.1992, Page 66
64 ÁrbókVFÍ 1991/92
5 Vélaverkfræðideild VFÍ
Stjórn vélaverkfræðideildar skipa: Hafliði Loftsson, formaður, Sigurður Brynjólfsson, gjald-
keri, Helgi Jóhannesson, ritari. Stjórnarfundir voru haldnir 4 sinnum á starfsárinu.
5.1 Skoöunarferö VVFÍ til Sláturfélags Suöurlands á Hvolsvelli
VVFÍ efndi til skoðunarferðar í kjötvinnslu Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli 3. aprfl 1992.
Mæting var mjög góð, eða alls 26. I lok skoðunarferðarinnar var aðalfundur VVFI haldinn.
Lagt var af stað frá Verkfræðingahúsi um kl. 12:30. Um kl. 14:00 mættu menn á staðinn og
skoðuðu hina nýju kjötvinnslu SS sem tók til starfa á Hvolsvelli síðastliðið sumar eftir ótrú-
lega stuttan byggingartíma. Framleiðsluferli kjötvinnslunnar var fylgt allt frá úrbeiningu til
pakkaðrar vöru á neytendamarkað. Verksmiðja SS er mjög vel tækjum búin og stendur er-
lendum kjötvinnslum ekki að baki tækjalega séð þó lítið sé um heildarlínur þar sem vöru-
tegundir eru miklum mun tleiri en í sambærilegum erlendum verksmiðjum. Kjötvinnslan var
skoðuð í góðri fylgd verkfræðinga SS þ.á.m. Steinþórs Skúlasonar forstjóra SS sem skýrði
mönnum frá tildrögum flutninga kjötvinnslunnar, verkefnum því tengdu og framtíðarhorfum í
iðnaðinum.
Að lokinni skoðun verksmiðjunnar var haldinn aðalfundur VVFÍ í mötuneyti kjöt-
vinnslunnar. SS bauð síðan upp á glæsilegar veitingar og voru þær að sjálfsögðu af eigin
framleiðslu. Stjóm VVFÍ þakkar SS sérlega góðar móttökur.
5.2 Aöalfundur VVFÍ1991
Fundargerð aðalfundar VVFÍ, sem haldinn var í mötuneyti Sláturfélags Suðurlands á Hvols-
velli 3. apríl 1992. Alls voru 26 mættir.
Hafliði Loftsson, formaður VVFÍ, bauð menn velkomna og stakk upp á Steinþóri Skúlasyni
sem fundarstjóra.
Hafliði flutti skýrslu stjómar og skýrði frá starfi deildarinnar síðastliðin ár og væntanlegri
skoðunarferð í ISAL í maí. Hafliði greindi fundarmönnum frá áætluðu framlagi VVFÍ til
afmælisársins en það er hálfs dags ráðstefna sem bera á heitið „Iðnaður í dreifbýli" og er ráð-
stefnudagur áætlaður l I .september 1992. Aætlað er að fá fyrirlesara á ráðstefnuna s.s. Steinþór
Skúlason forstjóra SS og Pétur Reimarsson framkvæmdastjóra Amess hf. sem báðir þekkja
rekstur fyrirtækja á landsbyggðinni. Einnig er áætlað að fá sjónarhorn sveitarstjórnarmanns á
efninu og jafnvel erlenda aðila einnig. Hafliði bað menn hugsa þessi mál og koma ábendingum
á framfæri til stjórnar.
Sigurður Brynjólfsson, gjaldkeri, útskýrði reikninga félagsins og kom meðal annars fram að
um 180 manns væru í VVFI. Eignir félagsins eru nú um 230 þ.kr. Reikningar félagsins voru
samþykktir með öllum greiddum atkvæðum.
Félagsgjald var samþykkt með öllum atkvæðum óbreytt kr. 1000 á ári.
Stjóm félagsins var endurkjörin einróma en hana skipa:
Hafliði Loftsson formaður, Verkfræðistofan V.H.L.
Helgi Jóhannesson ritari, Sláturfélag Suðurlands
Sigurður Brynjólfsson gjaldkeri, dósent Háskóla íslands
Önnur mál:
Fundarmenn vöruðu við kostnaði samfara afmælisráðstefnunni. Magnús Jónsson spurði til
hverra væntanleg ráðstefna ætti að höfða, verkfræðinga eða sveitarstjórna. Þau rök komu fram