Árbók VFÍ - 01.06.1992, Page 113
Tækniannáll 1991 111
Áætlanir gefa til kynna að vinnuaflsnotkun hafi minnkað um 0,5% á árinu 1990 en aukist
um 1,0% árið 1991. Á árinu 1991 er vinnuaflsnotkun talin hafa verið tæplega 127 þúsund árs-
verk.
2.8 Verðlag og tekjur
Eitt af því markverðasta við þróun efnahagsmála hér á landi undanfarin ár er hjöðnun verð-
bólgunnar. Á nokkrum árum hefur verðbólgan þrepast niður á svipað stig og í nálægum löndum.
Þetta eru mikil viðbrigði því hérlendis hefur verðbólgan verið mun meiri en í öðrum löndum
um áratugaskeið.
Árið 1989 nam framfærsluvísitalan 21% milli ársmeðaltala, 14,8% á sama kvarða 1990, en
6,8% árið 1991. Aðrar verðvísitölur segja svipaða sögu. Byggingarvísitalan hækkaði um 7,6%
árið 1991 og lánskjaravísitalan um 7,55. Áætlanir benda til að meðalverðbólga í OECD ríkjum
hafi verið 5,2% í fyrra. Á árunum 1970 til 1990 mældist verðbólga á íslandi að meðaltali 34%
á ári, en um 7% í OECD ríkjunum. Árshraði verðbólgu á síðasta fjórðungi ársins mældist ein-
ungis 2,3% á íslandi en 4,0% í aðildarríkjum OECD.
Kauptaxtar hækkuðu um 7,5% samkvæmt samningum milli áranna 1990 og 1991. Að við-
bættum eingreiðslum má ætla að hækkunin hafi verið um 8%. Kaupmáttur kauptaxta hækkaði
því um 0,5-1%
Gert er ráð fyrir að atvinnutekjur á mann hafi hækkað um 10% og kaupmáttur því batnað
um nær 3%.
Byrði beinna skatta er því sem næst óbreytt milli áranna 1990 og 1991. Hins vegar aukast
vaxtatekjur og vaxtagjöld heimilanna verulega milli áranna.
Þegar allt er metið hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hækkað um 2,5% frá 1990 til
1991. Einkaneyslan jókst að raungildi um 4% á mann og samanburðurinn við vöxt ráðstöfunar-
tekna bendir til þess að sparnaður heimilanna hafi enn dregist sarnan á árinu 1991.
Mynd 5 Kaupmáttur launa. Vísitala janúar 1989=100. Heimild Þjóðhagsstofnun.
2.9 Þjóöarútgjöld
Þjóðarútgjöld í heild eru talin hafa aukist um 5,7% milli áranna 1990 og 1991. Þetta eru mikil
umskipti frá árinu 1990 þegar útgjöldin jukust um minna en 1%. Aukningin stafar af aukinni
neyslu, bæði einkaneyslu og samneyslu.