Árbók VFÍ - 01.06.1992, Page 132
130 Árbók VFÍ 1991/92
Stærstu verkefnin við byggingu sjóvamargarða voru við Hornarfjarðarós og á Eyrarbakka
og Stokkseyri. Suðurfjörutanginn við Hornafjarðarós var varinn með 660 m löngum grjótgarði.
Lokið var við endurbyggingu sjóvarnargarða á Eyrarbakka og Stokkseyri, en þeir skemmdust
mikið í ofsaveðri í janúar 1990.
Á vegum Hafnamálastofnunar ríkisins voru boðnar út framkvæmdir (ríkisstyrktar hafnar-
gerðir og sjóvarnir) sem samkvæmt kostnaðaráætlunum voru metnar á 984 m.kr. Samnings-
upphæðir fyrir þessi sömu verk, sem þá oftast byggðu á lægstu tilboðum, hljóðuðu upp á 735
m.kr. eða 75% af kostnaðaráætlun. Auk þessa var keypt efni til bryggjugerðar erlendis frá fyrir
um 80 m.kr. að undangengnu úlboði.
7.3 Flugmál
Helstu framkvæmdir á árinu 1991 á sviði flugmála vom annars vegar í flugvallargerð og hins
vegar í uppbyggingu mannvirkja og kerfa vegna alþjóðaflugþjónustunnar. Verður þessum
málaflokkum gerð nokkur skil.
Framkvæmdir á flugvöllum: Uppbygging tlugvalla og búnaðar þeirra er gerður samkvæmt
svonefndri flugáætlun, sem gerð er til fjögurra ára í senn. Árið 1991 var seinasta ár fyrstu flug-
málaáætlunar, sem gerð var samkvæmt nýrri tíu ára áætlun um framkvæmdir á sviði flugsam-
gangna og samþykkt var á Alþingi árið 1987. Fjármagn til framkvæmda á flugmálaáætlun á
undanförnum fjórum árum er sýnd í töflu 5.
Helstu verkefni á árinu 1991 voru:
Uppbygging nýrrar flugbrautar á Egilsstöðum og stækkun tlug-
stöðvar.
Fyrstu framkvæmdir við gerð nýs flugvallar við Þórshöfn á Langa-
nesi.
Lagningu flugbrautarinnar í Grímsey lokið.
Stækkun flughlaðs á Vestmannaeyjaflugvelli.
Auk ofangreindra verkefna var unnið að fjölmörgum smærri verk-
efnum á áætlunarflugvöllum landsins, sem voru 28 talsins á umræddu
tímabili, og jafnframt keyptur ýmis tækjabúnaður svo sem slökkvi-
búnaður, snjóhreinsibúnaður og fjarskipta- og mælibúnaður.
Endanleg uppbygging og malbikun nýju flugbrautarinnar á Egilsstöðum er ráðgert að ljúka
á árinu 1992. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við Egilsstaðaflugvöll verði lokið á árinu
1993 með uppsetningu Ijósabúnaðar og aðflugstækja jafnframt því sem framkvæmdum við
stækkun og endurnýjun flugstöðvarinnar verði lokið á því ári. Um er að ræða stærstu al-
íslensku framkvæmd af þessu tagi sem ráðist hefur verið í hér á landi. Alls er áætlað að
uppbygging Egils-staðaflugvallar muni kosta 600-700 m.kr. þegar þvf verkefni er lokið.
Alþjóðaflugþjónustan:Til stendur að byggja nýja flugstjórnarmiðstöð áReykjavíkurflugvelli.
Þessi bygging verður að stórum hluta greidd af alþjóðaflugþjónustunni með leigugjöldum.
Tækjabúnaður flugstjórnarmiðstöðvarinnar eru nokkur fjarskipta- og tölvukerfi, þ. e.:
Fluggagnakerfi (Flight Data Processing System, eða FDPS).
Ratsjárgagnakerfi (Radar Data Processing System, eða RDPS).
Fjarskiptastjórnkerfi (Integrated Communications Control System, eða ICCS)
Flugupplýsingakerfi (Aeronautical Information System, eða AIS).
Áætlað er að heildarkostnaður við uppbyggingu nýju flugstjórnarmiðstöðvarinnar verði um
1988 264,1 m.kr.
1989 305,5 m.kr.
1990 272,4 m.kr.
1991 395,2 m.kr.
Tafla 5 Fjármagn til
framkvœmda á flug-
málaáœtlun á undan-
förnum fjórum árum,
upphœðir á verðlagi
ársins 1991.