Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 3
Starfsemi
samtakanna
Neytendasamtökin hafa verið mikið í sviðsljósinu í rúmt ár, og hefur
stjórn samtakanna hlotið á þeim tíma nokkra gagnrýni, bæði réttmæta
og rangláta. Núverandi stjórn samtakanna gerði fyrir rúmu ári miklar
kröfur til starfshátta annara, og stjórnin getur því hvorki né vill skor-
ast undan því að aðrir geri miklar kröfur til hennar.
En hvað hafa þá Neytendasamtökin og stjórn þeirra gert á þessu
starfsári? Nokkur atriði verða hér talin upp:
• Lltgáfa þriggja tölublaða Neytendablaðsins 1969 alls 100 bls.,
mest af efninu er frumsamið á Islandi með talsverðri fyrirhöfn og
kostnaði. -— Er þetta miklu meira efni cn þekkzt hefur í fyrri árgöng-
um blaðsins.
• Rekið viðamikla kvörtunarskrifstofu fyrir neyteirdur og haft dag-
lega opna skrifstofu með einum framkvæmdastjóra og skrifstofustúlku,
sem starfar hálfan daginn. Bókhald samtakanna frá 1. september 1968
hefur Ragnar Ólafsson löggiltur endurskoðandi séð um endurskoðun á.
Komið hefur verið upp nýrri spjaldskrá yfir félagsmenn, sem IBM
vann að. Argjöld flestra félagsmanna, sem er 200 kr. fyrir hvern þeirra,
hafa verið innheimt.
• Tekið þátt í matsnefnd um fatahreinsun og þátt í fundum með
seljendum eins og Mjólkursamsölunni um vandamál vörudreifingar.
• Unnið að skipulagningu á ábyrgðarmerkingum húsgagna í sam-
ráði við framleiðendur.
Ýmislegt hefur stjórn Neytendasamtakanna hins vegar ekki gert, og
ber það fyrst og fremst að nefna mikla vinnu við öflun nýrra félags-
manna. I sambandi við þetta er sú staðreynd að fjárhagur samtakanna
er engan veginn nógu góður.
I náinni framtið hyggst stjórn Neytendasamtakanna gera eftirfarandi:
• Gefa út nýtt tbl. Neytendablaðsins. Um helmingur efnis þess er
þegar unninn, þ. á m. í prentsmiðju. Annað efni er í vinnslu: Efna-
greining mismunandi þvottaefnistegunda og grein um sjálfvirkar
þvottavélar.
• Halda aðalfund um mánaðarmótin október—nóvember.
NEYTENDABLAÐIÐ
3