Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 4
Hitt og þetta
um mjólkurmálið
í síðasta tbl. Ncytendablaðsins sögðum við frá því, að við hefðum
gcfið því gaum að ekki væri alltaf tilskilið magn mjólkur í hyrnunum
og að Mjólkursamsalan hefði lofað að bæta hér um.
Nú er ný vcl komin i Mjólkurstöðina, sem á að bæta hér úr. Ekki
þora forstöðumenn hennar alveg að ábyrgjast, að mannleg mistök geti
ekki enn þá átt sér stað við áfyllingu hyrnanna en telja líkurnar á
því vera miklu minni en áður.
Skrifstofu Neytendasamtakanna hefur nýlega enn þá cinu sinni
borizt kvörtun um of lítið magn mjólkur í hyrnunum, en sá, sem
kvartaði, lét ekkert sönnunargagn af hcndi. Lausleg athugun virðist
gefa til kynna, að hyrnurnar séu núna sæmilega fylltar, en þetta
verður þó aðeins að teljast staðhæfing, ekki staðreynd, og telji einhver
neytandi vera alvarlegan misbrest á því, að tilskilið magn mjólkur sé
í hyrnunum, er hann beðinn að láta skrifstofu Neytendasamtakanna
vita.
Nýlega barst skrifstofu Neytendasamtakanna kvörtun frá þorpi all-
langt frá Reykjavík vegna mjólkurinnar þar. Þetta þorp er einn þeirra
gósenstaða, þar sem mjólkin er ekki seld í hyrnum. Neytendur hafa
hins vegar fjölbreytt val mjólkurumbúða og geta annað hvort keypt
mjólk í 10 lítra kössum eða 1 líters plastpokum. Auk þess er engin
mjólkurbúð á staðnum til að cinoka mjólkursöluna heldur geta kaup-
endur fengið mjólkina í sömu verzluninni og þeir geta fengið kjötið,
sykurinn og nærfötin.
Kvörtunin var þess efnis, að mjólkin í 1 líters plastpokunum fengi
gjarnan þráabragð eða jafnvel plastbragð. Mjólkin var aðflutt úr öðru
þorpi nokkurn spöl í burtu.
4
NEYTENDABLAÐIÐ