Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 6
Við þessi skjótu viðbrögð virSulegra yfirvalda við hóflegum afskipt-
um okkar varð okkur orðfátt, og við litum vizku þeirra með forundrun
þess fáfróða. Mjólkurbúið velur sjálft og sendir til rannsóknar sýnis-
horn beint úr eigin stöð. Sýnishornið er eitt, og það reynist við rann-
sókn vera fyrsta flokks vara. Þetta sannar síðan að mjólk seld allfjarri
mjólkurbúinu sé aldrei með plastbragði.
Ekki verður skilið svo við mjólkurmálið að við minnumst ekki á
alþjóölegar hliðar málsins. Það eru nefnilega til mjólkurmál í flestum
löndum.
1 Danmörku eru umræður allmiklar um mjólkurumbúðir. Eru þær
mjög forvitnilegar fyrir okkur og birtist því hér í blaðinu sérstök grein,
sem þýdd er dönsku blaði og fjallar um umbúðir mjólkur.
í Ástralíu heyja neytendasamtökin þar nú harðvítuga baráttu gegn
því að mjólk sé drýgð, seljendum til hagsbóta, með ýmsum gerviefn-
um. Eftir því sem „Choice", blað áströlsku neytendasamtakanna, segir,
er þetta erfiÖ barátta, einkum þegar kemur að rjómaframleiÖslu. Þetta
stríð neytendasamtakanna áströlsku er alls ekki við bændur heldur
mjólkuriðnaðarfyrirtæki, sem rekin cru sem venjuleg einkafyrirtæki.
I Bandaríkjunum kvarta ncytendasamtökin þar undan háu verði á
mjólkurafurðum, einkum á venjulegri drykkjarmjólk. I von um að fá
verðiÖ lækkað styðja samtökin tillögur um að afnema ákvæði, sein
hindra í sumum fylkjum framleiðslu gervimjólkur, en- leggja jafn-
framt á það mikla áherzlu, að gervimjólk og venjuleg mjólk verði vand-
lega aðgreind og neytandinn viti þannig alltaf, hvað hann er að kaupa.
6
NEYTENDABLAÐIÐ