Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 7
Blönduð mjólk
Allt bendir til, aÖ vegna lélegs árferðis sunnan lands og
vestan, muni verða mjólkúrskortur í vetur á sölusvæ'öi Mjólk-
ursamsölu Reykjavíkur. Yfirvöld treysta f>ví ekki, aÖ færÖ frá
Noröurlandi muni í vetur vera þaÖ góÖ, aÖ mjólkurflutningar
þaÖan geti tryggt aö staÖaldri þaÖ mjólkurmagn, sem á vantar.
Geymsluerfiðleikar mjólkur valda því að miklu erfiðara er að vernda
neyteridur gagnvart skorti á mjólk en öðrum matvælumv Lítið þarf
að koma fyrir til að bragð og gæði mjólkurinnar spillist, — og eftir
því er fljótt tekið.
Llm þrjá kosti virðist Mjólkursamsalan í Reykjavík ha'fa að velja
vegna væntanlegs mjólkurskorts:
1. Gera engar ráðstafanir, láta það ráðast hvort mjólkurflutningar
af Norðurlandi muni takast, og ef mjólkurskortur verður, treysta
á sanngirni neytenda, — að fullorðnir menn takmarki mjólkur-
neyzlu sína við slíkar aðstæður svo að börnin fái næga mjólk.
2. Hefja mjólkurskömmtun með sérstökum skömmtunarseðlum í
hvert skipti, sem skortur er á.mjólk.
3. Reyna að leysa mjólkurskortinn með nýjum tæknilegum aðferð-
um.
Fyrstu tveir kostirnir hafa nokkrum sinnum verið reyndir og með
lélegum árangri. Skömmtunarseðlakerfið hefur reynzt þungt í vöfum
og ákaflega óvinsælt. Því miður hefur reynzt óraunhæft að treysta á
„gagnkvæma tillitssemi neytenda" þegar um vöruskort er að ræða,
margir fara þá að „hamstra", oft langt umfrctm þörf, og þeir, sem vilja
sýna sanngirni, fá því ekki neitt. „Ilamstrararnir" þurfa svo auðvitaÖ
að neyta vörunnar, — í mjólkurskorti auka því oft fullorðnir menn
mjólkurþamb sitt, meðan börn annarra fá enga mjólk.
Mcð hliðsjón af þessu hefur landbúnaðarráðuneytið beðið Mjólkur-
samsöluna í Reykjavík að reyna þriðja kostinn, athuga hvort hægt er
að bæta mjólkurskortinn með hjálp tæknilegra nýjunga. FrumkvæðiÖ
hér á landhíinaðarráðuneytið, enda hefur }>að yfirumsjón með allri
landbiinaðarframleiðslu, og vilji einhver ásaka einhvern vegna mjðlk-
NEYTENDABLADID
7