Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 16
Til hægri eru mjólkurumbúðirnar, sem Mjólkursamsalan í Reykjavík
notar núna, 2 lítra fernan, 1 líters hyrnan og V4 líters hyrnan. — Til
vinstri eru umbúðir, sem Mjólkursamsalan notar ekki fyrir mjólk,
1 líters ferna (Tetra Rex), og svo Tetra Brick umbúðirnar, sem Mjólk-
ursamsalan hefur hug á að taka í notkun.
verðsins, er fluttur beint inn frá Bandaríkjunum. Eins og fram hefur
komið kostar hver líter í pökkun í 10 lítra kössum kr. 2,20 og 25 lítra
kössum kr. 1,76. Af þessu er ljóst, að kassarnir hafa enga þýðingu í
sambandi við verðhagræðingu en gætu komið að góðum notum vilji
neytandinn kaupa mikið magn mjólkur í einu. Vinsældir pappakass-
anna sem mjólkurumbúða eru tvímælalaust miklar víða út um land,
en ekki er eins víst að þörf sé á þeim í Reykjavík, þar sem mjólkur-
búðir eru ávallt í nágrenni. Um það þorum við ekki að dæma, —
slíkur dómur gæti aðeins kornið í kjölfar sérstakrar rannsóknar. Hér
skiptir einnig nokkru máli að gera þyrfti róttækar breytingar á öllum
vélakosti Mjólkursamsölunnar til að hægt væri að hefja notkun pappa-
kassa sem mjólkurumbúða í Reykjavík í stórum stíl.
Að sögn forstjóra Mjólkursamsölunnar í Reykjavík er í athugun að
hefja framleiðslu á nýrri tegund umbúða fyrir mjólk hér á landi, Tetra-
16
NEYTENDABLAÐIÐ