Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 17
Brick umbúðirnar (Sjá myndir). Þessi nýja „fernutegund" er fyrir-
ferðarlítil, en allt er á huldu með kostnað við hana, aðeins vitað að
hann verður allmiklu meiri en við hyrnur og alls ekki lægri en við
fernur. Að öllum líkindum verða þetta 1 líters umbúðir. En sá hængur
fylgir þessari nýjung, að komi Tetra Brick umbúðir á markaðinn verða
'fernurnar að víkja (samkvæmt frásögn forstjóra Mjólkursamsölunnar).
AAikið skortir á, að nægilegt magn ferna sé í mjólkurbúðum til að
fullnægja eftirspurninni. Orsökin fyrir þessu er alvarlegt þrátefli milli
Kassagerðar Reykjavíkur h.f. og viðskiptamálaráðuneytisins annars
vegar og Mjólkursamsölunnar hins vegar. Kassagerðin hefur boðizt til
að hefja framleiðslu á fernuumbúðum með vélum og hráefni frá Banda-
ríkjunum og talið slíkt hagstætt fyrir íslenzkan iðnað. Mjólkursam-
salan heldur því hins vegar fram, að fyrirhuguð fernutegund Kassa-
gerðarinnar yrði dýrari í framleiðslu en fernutegundin Tetra Rex, sem
nú er í notkun. Viðskiptamálaráðuneytið skarst í leikinn, — Kassa-
gerðinni til stuðnings, og bannaði frjálsan innflutning á fernuefni.
Hins vegar er innflutningur á hyrnuefni frjáls!
Meðan innflutningur á fernuefni er háður leyfum, neitar Mjólkur-
samsalan í Reykjavík að kaupa til landsins dýrar mjólkuráfyllingar-
vélar fyrir fernur, þar sem slík fjárfesting sé varasöm, — allt sé á huldu
um notkunargildi vélanna í framtíðinni. Síðastliðinn vetur fjallaði sér-
stök nefnd, sem var skipuð af ríkisvaldinu, um fernumálið, og komst
að þeirri niðurstöðu, að ekki væri hægt að mæla sérstaklega með til-
hoði Kassagerðarinnar. — Þetta nefndarálit hefur samt í engu breytt
stefnu viðskiptamálaráðuneytisins í „fernumálinu".
Það er vegna þessa þráteflis, að neytendur geta ekki keypt mjólk t
fernuumhúðum í dag í eins stórum stíl og þeir óska. Þetta þrátefli
verður tafarlaust að taka enda.
Neytandinn hefur ótvíræðan hag af því að geta valið úr sem flest-
um tegundum mjólkurumbúða. En ekki er hægt að búast við að mjólk-
urstöð geti framleitt mjólk í mjög mörgum umbúðartegundum án þess
þess að framleiðslukostnaður hækki mjög mikið; fyrir hverja nýja um-
búðategund þarf dýrar vélar og gott rými. Þess vegna verður hver
mjólkurstöð að velja og hafna, og þar sem smekkur manna er breyti-
legur hlýtur valið alltaf að vera umdeilanlegt. Neytendur geta fyrst og
fremst gert þá kröfu að mjólk verði framleidd í sem flestum umbúðar-
tegundum án þess að umbúðakostnaðurinn verði óeðlilega hár.
1 Ijósi þessa er raunhæft að krefjast eftirfarandi atriða af Mjólkur-
samsölunni í Reykjavík:
17
NEYTENDABLADIÐ