Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 18
Fullnægja verður þegar í stað eftirspurn neytenda eftir 2 lítra
fernum.
Þegar í stað ætti að hefja framleiðslu á mjólk í 1 líters fernum og
má þá sjá, hvort neytandinn vill borga kr. 1,10 á líter til að losna við
hyrnuna. Hér á neytandinn sjálfur að dæma, ekki Mjólkursamsalan,
og þá sézt hvort hyrnan er eins óvinsæl og margir vilja halda fram.
Hyrnan er tvímælalaust ódýrasta umbúð úr pappa og plasti, sem nú
þekkist, en hvað metur neytandinn mikið gæði hennar í samanburði
við verð? Um það á salan að dæma.
Ef sala á mjólk í Tetra Brick umbúðum hefst, má alls ekki hætta
strax sölu á mjólk í fernum (Tetra Rex). Fernurnar hafa víða um
heim reynzt mjög vinsælar mjólkurumbúðir, og ástæða er til að ætla
að ísland sé hér ekki undantekning. Reyna mætti hvor umbúðateg-
undin, Tctra Brick og Tetra Rex (fernur), seljist betur með því að
hafa háðar á boðstólum í takmarkaðan thna, segjum Vi—1 ár, og taka
eftir þennan reynslutíma þá umbúðartegund af markaðnum, sem síður
selzt.
18
NEYTENDABLADIÐ