Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 22

Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 22
komulaginu þar og Hressingarskálanum (nema á TröS er ekki seldur heitur matur). Augsýnilegt er, að þörf er á endurskoðun laganna um veitingasölur. Við urðum því að búa til nýja flokkun og kalla allt veitingahús („restaurants"), þar sem gestir sátu við sérstakt borð og gátu haldið sér sæmilega aðgreindum frá öðrum gestum og starfsfólki. Andstæðan við „restaurant"* var veitingastaður, þar sem gesturinn sat við af- greiðsluborðið og sötraði þar kaffið og borðaði rúnnstykkið, þetta nefn- ist á flestum erlendum málurn „snack bar“, sem e. t. v. gæti heitið hér veitingastofa. Afgreiðsla á „snack bar“ var einföld í sniðum, þar sem viðskiptavinurinn sat við afgreiðsluborðið, en á „restaurant" gat bæði verið um sjálfsafgreiðslu og framreiðslu að ræða. Einn stað áttum við í erfiðleikum með að flokka, en það var Sæla Café. Meðal almennings heitir slíkur staður einfaldlega matsölustaður og er algengur sums staðar í Reykjavík. Hér er um að ræða ódýrt veitingahús með sjálfsafgreiðslufyrirkomulagi. Kaffið var ýmist selt í sérstökum könnum eða einstökum bollurn. Könnurnar liöfðu mismunandi mikið kaffimagn, eða fyrir 2—4 bolla. Á þessu má greinilega sjá að kaffiveitingar í könnum eru fullkomnari þjónusta en kaffiveitingar í einstökum bollum. Veitingastaðirnir voru mjög misjafnir að öllurn búnaði. Þcgar haft er í huga hvort á veitingastaðnum var sjálfsafgreiðsla eða framreitt á borðin, er rétt að athuga að veitingastaðirnir telja fram- reiðslu- (þjónustu) gjaldið vera 15% af verðinu. Þess vegna er: Af 50 krónum framreiðslugjaldið 7,50. — 60 — — 9,00. — 70 — — 10,50. — 80 — — 12,00. Hér fylgir með tafla um hina ýmsu veitingastaði. I dálki 1 er nafn og staðsetning staðarins. f dálki 2 er tegund veidngastaðarins nefnd R = „restaurant", SB = „snack bar“, eins og að framan hefur verið skilgreint. f dálk 3 er verðið á kaffinu og rúnnstykkinu. í dálk 4 er sagt frá því hvort kaffið hafi verið selt í könnurn eða bollum. í dálk 5 er sagt frá hvort um sjálfsafgreiðslu eða framreiðslu var að ræða. í dálk 6 hvort ábót fengist án viðbótargreiðslu. í dálk 7 hvort á veit- ingastaðnum sé einnig seldur heitur matur og hvort þar séu vínveit- ingar. í dálk 8 eru tilgreind önnur atriði, sem nauðsynlegt þykir að taka fram, eins og um húsnæði og húsbúnað. Meira þarf ekki að segja um þessa töflu, lesendur geta dæmt um hana sjálfir. 22 HEYTEHDABLAÐIÐ

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.