Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 25
Blaðaauglýsingar þurfa meir að byggjast á skrifuðum tcxta en aðrar
auglýsingar. Nýjasta tegund auglýsinga, sjónvarpsauglýsingar, þurfa
hins vegar minna að byggja á skrifuðum texta og almennum upplýs-
ingum um vöruna, en aðrar auglýsingar og þurfa því minna að skír-
skota til skynsemi. Þær fjalla því aðallega um hluti, sem koma raun-
verulegri fræðslu um auglýstu vöruna ekkert við.
Sjónvarpsauglýsingar hér á Islandi geta stundum verið góðar skrítl-
ur, reynt er að laða kaupendur með því að tengja auglýstu vöruna
einhverju skemmtilegu, sem í raun og veru kemur vörunni ekkert við.
Frægasta dæmið hér er sennilega auglýsing Ilerrahússins um Kóróna-
föt, þar sem Bessi Bjarnason leikur snilldarvel. Stundum er höfðað til
tilfinninga væntanlegs kaupanda á öllu vafasamari hátt, eins og til
ótta og öryggisleysis, sbr. auglýsingu frá tryggingarfélagi, þar sem fyrst
sést mynd af lítilli stúlku og þessu næst bruni, — litla stúlkan virðist
brenna, og með þessu fvlgir textinn: „Þetta gæti verið vðar hús, vðar
heimili". Tilgangur auglýsingarinnar er: Trygging á innbúi.
Sumir verja auglýsingar með þeim rökum, „að það sé móðgun við
skynsemi neytandans að gera ráð fyrir að hann sjálfur geti ekki dæmt
NEYTENDABLADIÐ
25