Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 30
auglýsendur, þ. e. seljendur, mörg tækifæri til að koma sjónarmiðum
sínum áleiðis. Sem sagt: Ótvíræður hagnaður fyrir seljendur, tap fyrir
kaupendur.
M. a. vegna reynslunnar í Bretlandi eru neytendasamtök á Norður-
löndum mjög á móti þvi, að sjónvarpsauglýsingar verði leyfðar í lönd-
um þeirra. Raunar berjast neytendasamtök um allan heim á einn veg
eða annan á móti sjónvarpsauglýsingum. ■
Tíð röksemd gegn sjónvarpsauglýsingum er að þær ógni frelsi ein-
staklingsins og friðhelgi heimilisins. Vilji einstaklingurinn ekki sjá
auglýsingu í blaði eða tímariti, getur hann einfaldlega sleppt að lesa
hana. Sjónvarpsauglýsingar eru hins vegar hluti af samfelldri dagskrá
og miklu erfiðara að komast hjá því að sjá 'þær en venjulegar auglýs-
ingar, og því ráðast þær meir inn í einkalíf manna.
Reynslan erlendis af sjónvarpsauglýsingum er því í höfuðatriÖum
þessi:
-k Engar auglýsingar geta blekkt eins vel og sjónvarpsauglýsingar.
-!= Engar auglýsmgar ráðast eins mikið inn í einkalíf manna og
sjónvarpsauglýsingar.
'l' Sjónvarpsauglýsingar eru einu auglýsingarnar, sem geta haft
mikil áhrif á börn.
'í- Sjónvarpsauglýsingar stuðla að einokunarmyndun.
Sjónvarpsauglýsingar geta gert sjónvarpsstöðvar óeðlilega hlynnt-
ar seljendum í samskiptum þeirra við neytendur, þegar dagskrá er
valin.
íslenzka sjónvarpið og auglýsingatekjur.
Gunnar Vagnsson, fjármálastjóri ríkisútvarpsins, hefur gefið Neyt-
endablaðinu eftirfarandi upplýsingar: Aðaltekjur íslenzka sjónvarpsins
árið 1968 skiptust þannig:
Afnotagjöld kr. 61.083.093.
Auglýsingatekjur kr. 6.540.667.
Auglýsingar voru því 1968 um 10% af aðaltekjum sjónvarpsins en
afnotagjöldin um 90%.
Á árinu 1969 er búizt við allmikilli aukningu á auglýsingatekjum,
og telur fjármálastjóri ríkisútvarpsins, að þær fari ekki undir 10—11
milljónum króna. Tekjur afnotagjalda munu einnnig aukast mikið.
1968 voru greidd afnotagjöld af 27—28.000 sjónvarpstækjum, en voriÖ
1969 voru skráð sjónvarpstæki orÖin um 32.000. Er búizt við að á
árinu 1969 verði greidd afnotagjökl af allt að 33.000 sjónvarpstækjum,
sem þýðir aukningu um 5—6000 tækja frá árinu 1968, eða um 20%.
Þetta þýðir um 12 milljón króna hækkun í tekjum af afnotagjöldum:
30
NEYTENDABLAÐIÐ