Neytendablaðið - 01.10.1969, Page 37
Úr rcglugcrS M. H. B., scm samin er á tæknimáli, vcrða þcssar
greinar birtar:
1. gr. Léreft skal ávallt nota undir áklæði á sæti, arrna, bök og púða.
2. gr. Vattera skal ávallt grind undir áklæði (vatt svamp).
10. gr. Eigi má nota lakara áklæði en Rannsóknarstofnun iðnaðarins
hefur gefið upp að talið sé nógu gott erlendis, en það er slitþol gott,
ljósþol 5—6, litarfesta 3—5, rakt og 3—5 þurrt, en kvarðinn er 1—8
og 1—5.
Síðastnefnda greinin er raunar langmikilvægasta atriði reglugerðar-
innar. Rannsóknarstofnun iðnaðarins áhyrgist gæði áklæðisins gagn-
gart framleiðenduvi og neytendum með gæðarannsóknum. Þetta er
mjög hagkvæmt, — langalgengasta kvörtunartilefni í snmbandi við
húsgögn er vegna áklæða.
Neytendablaðið beinir þeirri áskorun til neytenda, að þeir
þeir kaupi að öðru jöfnu aðeins þau búsgögn, sem ábyrgðar-
merki hafa.
NEYTENDABLADID
37