Neytendablaðið - 01.10.1969, Qupperneq 38
Jóhann Kúld:
Góð meðferð á
neyzlufiski nauðsynleg
Þrátt fyrir það, að við búum við mjög góð fiskimið og sóknin á
miðin sé yfirleitt stutt, þá er því ekki að heilsa að við höfum á borðum
daglega jafngóðan eða betri nýjan fisk heldur en margar þær þjóðir,
sem hafa mikíð verri skilyrði til þess en við. Orsökin til, að ástandið
í þessum efnum er svo lélegt hér, sem raun ber vitni, er sú, að meðferð
á nýjum fiski er mjög ábótavant bæði á sjó og landi. Tökum til dæmis
fiskveiði- og fiskiðnaðarland eins og Noreg. Þar eru í gildi reglugerðir
í bæjum og borgum, sem ákveða meðferð og gæði þess nýja neyzlu-
fisks, sem leyfilegt er að selja á innanlandsmarkaði. Hvert markaðs-
svæði hefur sína reglugerð. En allar þessar reglugerðir eiga það sam-
eiginlegt, að þær gera enn strangari kröfur en sjálft ríkisfiskmatið. —
Norska ríkismatið er það strangt, hvað viðkemur meðferð og vinnslu á
nýjum fiski, að mikið vantar á, að hér séu gerðar hliðstæðar kröfur.
Þar er t. d. allur fiskur settur í kassa á miðunum. Undantekning frá
þessu eru aðeins smábátar, þar sem ekki er hægt að koma kössum við.
Fiskur er þar undantekningarlaust kældur niður með ís strax á mið-
unum, nema yfir köldustu mánuði ársins. Þá er fiskurinn líka slægður
og þveginn áður en hann er ísaður. Óslægðan fisk er ekki leyfilegt að
koma með að landi, þó að bátur landi fisknum á sama sólarhring og
hann er veiddur, nema köldustu mánuði ársins.
Þegar við berum þetta saman við meðferð á fiski hér á landi, má
öllum vera sjáanlegt, að við eigurn mikið eftir ólært í þessum efnum.
Ef Neytendasamtökin vilja koma á umbótum, hvað viðkemur meðferð
og gæðum á nýjum fiski, sem hér er seldur á innanlandsmarkaði, þá
álít ég, að þau verði að fara svipaða leið og farin hefur verið í öðrum
menningarlöndum í þessu efni, að fá samþykkta reglugerð, t. d. í borg-
arstjórn Reykjavíkur, þar sem ákveðin er öll meðferð á neyzíufiski
ásamt lágmarksgæðum þess fisks, sem seldur er á borgarsvæðinu. Engin
slík reglugerð er til hér fyrir innanlandsmarkaðinn og væri mikil þörf
38
NEYTENDABLAOIÐ