Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 41
Fisksala og neytendur
Síðastliðinn vetur ákvað stjórn Neytendasamtakanna að beita sér
fyrir úrbótum í fisksölumálum, einkum í Reykjavík. Þann 14. marz
1969 var borgarstjórn Reykjavíkur sent sérstakt bréf um þetta efni.
Höfuðatriði bréfsins voru kröfur um betri meðferð á fislú áður en
hann kæmi í fiskhúðirnar.
Þessi atriði þarf einkum að leggja áherzlu á:
Að fiskurinn verði þegar á miðum settur í sérstaka kassa. — Talið
cr, að fiskur skemmist eins mikið við að vera kastað til í einni upp-
skipun og hann skemmist á einum sólarhring í slæmum geymslum.
Að þess verði ávallt gætt að fiskurinn verði nægilega kældur, kæld-
ur með ts á miðunum, einkum um sumarmánuðina, og geymdur í góðu
kælirými t fiskbúðurmm.
Erindi Neytendasamtakanna er annars í öllum höfuðatriðum sam-
hljóða grein jóhanns Kúlds um meðferð á neyzlufiski hér t blaðinu.
Borgarráð sendi erindi Neytendasamtakanna til heilbrigðisnefndar
Reykjavíkur, sem þegar tók málið til athugunar og hélt nokkra fundi
um það, og var fulltrúi Neytendasamtakanna þar viðstaddur. Hafði
heilbrigðisnefndin mikinn áhuga á úrbótum í fiskdreifingarmálum
Reykjavíkur, en taldi sig fremur lítið geta gert. 11. júní 1969 barst
Neytendasamtökunum bréf frá Borgarstjóraembættinu og fylgdi með
umsögn Borgarlæknisembættisins um erindi Neytendasamtakanna. —
Undirritaði Þórhallur Halldórsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkurborgar, umsögnina.
Ekki er hægt að birta umsögnina orðrétta hér, en nokkur mikilvæg'
atriði hennar verða rakin hér ásamt athugasemdum Neytendablaðsins.
Heilbrigðisyfirvöld eru sammála því, að æskilegt sé að fiskurinn sé
settur í kassa strax á miðunum, en telja erfiðleika vera við framkvæmd-
ina, t. d. kostnaðarauka. Orðrétt stendur: „Nú er þó fyrirhugað að í
sumar (þ. e. 1969) verði gerður út bátur frá Vestmannaeyjum, sem
mun gera tilraunir með annars vcgar að ísa fiskinn í kössum um borð
NEYTENDABLAÐIÐ
41