Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 45
Venjulegi fisksalinn okkar er yfirleitt einn í búðinni; — einstaka
sinnum fær hann hjálp frá ungling, oft barni eða barnabarni Hann
starfar einn við útvegun fisksins, og þegar fisksalinn í næsta hverfi
býður 12 kr. í ýsukílóið úr bátnum, reynir hann gjarnan að yfirbjóða
starfsbróðurinn og býður því 13 kr. í ýsukílóið. Einu sinni reyndi
venjulegi fisksalinn okkar að stofna fiskheildsölufyrirtæki með öðrum
venjulegum fisksölum, en fyrirtækið misheppnaðist algjörlega. Venju-
legi fisksalinn okkar er oft gamall maður, sem starfar einn af gömlum
vana og saknar góðu og gömlu dagana, þegar enginn vandi var að fá
fisk.
Venjulegi fisksalinn okkar er ekki ríkur maður. Stundum vegnar
honum vel. Til þess þarf hann einkum þrennt: Hestaheilsu, góða þekk-
ingu á fiski og verzlunarvit. Skorti eitthvaS af þessu vegnar fisksal-
anum illa. Heilsunni hnignar, búSin drabbast niSur.
Venjulegi fisksalinn okkar býr viS margs konar húsnæSi. ÞaS eru
ekki meira en 10—15 ár síSan fariS var aS byggja húsnæSi, sem átti
sérstaklega að vera fyrir fiskbúð. Þetta nýja húsnæði er í verzlunar-
miSstöSvum nýju hverfanna og er óhemju dýrt. En í hverfum, sem
byggS voru fyrir 1955, er fiskbúSunum holaS niSur hér og þar; í bíl-
skúrum, í kjöllurum íbúSarhúsa, og annars staSar þar sem húsnæSi
fæst.
Fisksalinn í ,,gömlum“ hverfum er því oftast í gömlu og úreltu hús-
næSi, og stundum er fisksalinn líka gamall og úreltur. Fisksalinn í
dýra verzIunarhúsnæSinu er hins vegar oft á bezta aldri og vinnur yfir-
leitt aldrei einn í búSinni.
Þótt fisksalar virSast vera ósammála um margt, eru þeir sammála um
eftirfarandi atriSi:
— MeSferSin á fiskinum frá því aS hann veiSist þangaS til hann
kemur í fiskbúSina er mjög slæm.
— ErfiSleikarnir viS öflun fisks eru miklir og fara fremur vaxandi.
1 þessu sambandi má benda á dæmiS um ýsuna:
Opinbert verS á ýsu beint úr bát eSa togara er kr. 9,40 kílóiS, ef um
1. flokk er aS ræSa og kr. 7,05 af 2. flokk. Islenzkir fisksalar kaupa
allan fisk sem 1. flokks vöru, — varan fæst yfirleitt aldrei metin fari
hún á innanlandsmarkaS. En enginn íslenzkur fisksali fær samt ýsuna
á kr. 9,40, heldur verSur verSur aS greiSa fyrir hana hærra verS. Lægsta
verS, sem íslenzkur fisksali fær ýsu á, er 10 kr. kílóiS. En aSeins þeir,
NEYTENDABLADID
45