Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 49
_ IVÍjög Alís
Agætt Gott Sæmiíegt Siæmt lélegt fiskbúðir
Fjölbreytni fisktegunda 8 20 10 7 1 46
Loftræsting ........... 2 23 15 4 2 46
Afgreiðslurými ........ 2 20 10 14 46
Heildarsvipur ......... 2 25 12 3 4 46
Eins og taflan ber með sér er geysimikill munur á fiskbúðunum.
Sama morgunn og við komum í fiskbúð, þar sem fengust 16 mismun-
andi tegundir a'f fiski, komum við í fiskbúð, þar sem einungis salt-
fiskur og ýsuflök voru til sölu. Sama morgunn og við komurn í fisk-
búð, sem var svo þrifleg að hefðum við ekki séð fiskinn fyrir innan
afgreiðsluborðið hefðum við getað álitið að við værum stödd í venju-
legri matvöruverzlun, komum við í fiskbúð, þar sem dauðar flugur
voru urn allt, og hið eina, sem var slorugra og skítugra en búðin var
fisksalinn sjálfur.
3 fiskbúðir voru í því ástandi að við álítum að þeim hefði átt að loka
vegna skorts á hreinlæti. Þessar 3 fiskbúðir (af 46 fiskbúðum í Reykja-
vík) voru allar í búsum, sem einnig voru notuð fyrir íbúðir. Flestar
fiskbúðirnar virtust samt vera mjög hreinlegar, og einkum voru margar
fiskbúðir í nýjum hverfum smekklegar.
Neytendasamtöikn munu halda áfram athugunum sínum á fiskbúð-
um. Verið getur að upplýsingar um hverja einstaka fiskbúð verði birtar
ásamt nafni fiskbúðarinnar, þegar þessara upplýsinga hefur verið leitað
nægilega oft.
NEYTENDABLADID
49