Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 52
gefinn frjúls,. án þess að krefjast um leú) víðtækrar endurskipulagn-
ingar á íslenzkum landbúnaði.
Vafalaust er þörf á því að ýmis atriði í íslenzkum landbúnaði verði
könnuð niður í kjölinn, og hagsmunir neytenda þá einkum hafðir í
huga. En yfirlýsing Félags íslenzkra stórkaupmanna, þar sem stór-
kaupmenn í nafni neytenda bjóðast til að hefja kartöfluinnflutning,
getur ekki talizt hlutlaust mat á vandamálinu. Sama gildir um yfirlýs-
ingu Kaupmannasamtakanna — smásalar ættu fyrst að líta í eiginn
barm; hvernig geyma þeir kartöflur í verzlunum sínum?
En endirinn varð auðvitað sá, að úr málinu varð pólitískt þjark og
tilefnið, skemmdu kartöflurnar, gleymdist. Morgunblaðið birti foryztu-
grein 14. ágúst, þar sem yfirlýsing íslenzkra stórkaupmanna var talin
eins konar sönnun á því að neytcndur hefðu hag af frjálsum innflutn-
ingi kartaflna, og Þjóðviljinn birti sama dag grein, þar sem yfirlýsing
stórkaupmannanna var notuð sem tilefni til árása á þá og því spáð, að
frjáls innflutningur kartaflna mundi framkalla margar kartöfluhallir
og mikla auglýsingaherferð: „Kaupið Chiquita kartöflur!"
Hvað sem líður skrifum af þessari tegund munu Neytendasamtökin
vinna að því að geymsluvandamál kartaflna í dreifingu verði leyst
jafnt hjá heildsala sem smásala. G.
52
NEYTENDABLAÐIÐ