Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 58
Undraefnin við þvottinn
— meira um sjampó og efnakljúfana
1 síðasta tbl. Neytendablaðsins var einkum fjallað um lnrein-
lætisvörur. Þar sem framleiðendur og seljendur hreinlætisvöru
eru meira háðir auglýsingum en aðrir, fjallaði blaðið einnig
úbeint um auglýsingar. Það er ekkert leyndarmál, að sú stað-
reynd, að meira en helmingur áhrifaríkustu auglýsinga á ls-
landi, sjónvarpsauglýsingar, eru um hreinlætis- og snyrtivörur,
ýtti mjög á eftir okkur að fjalla um þessar vörur.
Viðbrögð lesenda blaðsins við efni þess voru yfirleitt jákvæð
með einstaka undantekningum. Því miður bárust okkur engin
bréf með athugasemdum um efni blaðsins eins og við höfðum
beðið um. Þeir örfáu einstaklingar, sem brugðust illa við efni
blaðsins, vildu alls ekki fara í ritdeilur um það og segir það
e. t. v. talsvert.
Um tvennt höfum við fengið munnlegar athugasemdir
vegna síðasta tbl., um greinina um sjam'pó og greinina um
„lífrænu" þvottaefnin.
Sjampó.
Greinin um sjampó var jþýdd úr danska neytendablaðinu „Tænk“,
sem byggir á rannsóknum, sem danska ríkið kostar.
Athugasemdum um sjampógreinina er fljótsvarað: Það eru sá-pu-
efnin, sem þvo hárið, en ekki ilmefnin og undraefnin, og sápuefnis-
magn sjampótegunda stendur í engu hlutfalli við verðmismun þeirra.
Ef einhver ilmefni og undraefni eru áfram í hárinu eftir þvottinn,
eru sápuefnin og óhreinindin líka eftir í því. Oll þessi dýru efni eru
þess vegna í hárinu svo stuttan tíma, að þau hafa enga þýðingu, —
sé hárið vel þvegið auðvitað.
58
NEYTENDABLAÐIÐ