Neytendablaðið - 01.10.1969, Síða 59
Þessi mynd er tekin úr norska neytendablaðinu „Forbruker-Rapporten"
og sýnir hvernig milljónir efnakljúfa sjálfrar náttúrunnar geta eyði-
lagt rennilása.
Séreiginleikar sjampósins eru hins vegar þeir, að sápuefni þess eru
mildari en almenn gerist um sápur, og sumar sjampótegundir hafa
sérstaldega mild sápuefni. Þegar til viðbótar kemur góður ilmur,
skemmtileg froða og sérstakt traust einstaklingsins á sjampótegundinni,
getur hún verið einkar þægileg til notkunar, sem síðan getur haft í
för mcð sér stóraukið hreinlæti í meðferð hársins. Þetta aukna hrein-
læti hindrar svo flösumyndun, of mikla fitu í hárinu o. fl., — en
þetta þakkar neytandinn að sjálfsögðu margauglýstum undraefnum en
ekki eigin hreinlæti. En án trúarinnar á undraefnin gæti meðferð
hársins versnað o. s. frv...
„Lífrœn" þvottaefni.
Greinin „Hæ og hó, nýtt kraftaverk við þvottinn", um milljónir efna-
kljúfa sjálfrar náttúrunnar, vakti tvímælalaust mesta athygli. Hún er
þýdd úr útbreiddasta neytendablaði heims, „Consumar Reports", blaði
NEYTENDABLAÐID
59