Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 66
Gerviefni.
Gerviefni ryðja sér æ meira til rúms. Mörg þcirra krefjast sérstakrar
meðferðar. Á íslandi er látið nægja að afgreiðslufólk útskýri í verzlun-
inni eiginleika efnisins fyrir kaupandanum. Er þá oft tilviljunum háð
hvort kaupandinn fær fullnægjandi upplýsingar. Kaupandinn fær yfir-
leitt aldrei upplýsingar frá seljanda á miða, sem festur er á efnið eða
á sérstöku blaði, um eiginleika og notkun efnisins, en slíkar skriflegar
upplýsingar eru auðvitað þær einu, sem seljandi getur ábyrgzt. Kaup-
andi gerviefnis getur því ekki vitað með vissu hvers konar „mjöl hann
fær í pokanum".
Rafmagnstceki og vélar.
Rafmagnstækjum og vélum fylgja yfirleitt upplýsingar um notkun,
svo og ábyrgðarskírteini. Stundum er seljandi svo djarfur að gefa út
ábyrgðarskírteini til skemmri tíma en eins árs og firra sig þannig að
einhverju leyti þeirri ársábyrgð, sem kaupalögin kveða á um. En
ábyrgðin á tækinu er ol’t svo takmörkuð, að hún reynist haldlítil, —
og jafnvel þótt kaupandi fái að nafninu til tjón bætt, getur viðgerðin
tekið svo langan tíma og varahlutaþjónusta verið svo slæm, að mikið
tjón óbætt hljótist af.
Auglýsingar.
Auglýsingar eru stöðugt að verða þýðingarmeiri fyrir viðskipti. Að
vissu marki eru auglýsingar nauðsynlegar sem kynning á vörunni, en
seljandinn, þ. e. sá, sem auglýsir vöruna, hefur ekki fyrst og fremst
áhuga á hlutlausri upplýsingamiðlun, heldur að hafa upplýsingarnar
þannig að sölumöguleikar vörunnar aukist. Margar auglýsingar ein-
kennast því af hagræddum staðreyndum, einhliða upplýsingum og lof-
orðum urn gæði, sem eru meira eða minna út í bláinn. Hætt er því
við, að auglýsingar feli nokkuð margar „skemmdar mjöltunnur" og
geri það miklu betur en skemmur kaupmanna fyrir 200 árum.
Hér vantar opinberan aðila til að sjá um framkvæmd laga, sem
þegar eru til staðar.
Kaupmaðurinn og fótœki maðurinn.
Kaup með afborgunarskilmálum hafa undanfarin ár verið mjög al-
geng. Venjulega reiknar seljandi sér bankavexti af láninu til kaup-
andans og tapar því engu sjálfur. Stundum krefjast seljendur engrar
útborgunar, og einn seljandi dýrrar vörutegundar býður í auglýsingu,
sem víða sést, vöru með aðeins 10% útborgun. „Fátæki“ viðskiptavin-
66
NEYTENDABLAOIO