Harpan - 01.06.1937, Page 3
Drengjnkór Reykjavíkur (eins og hann nú er skiþaður)
söng 19. mai s, 1. í Nýja-bió, við mikla aðsókn og góðar viðtökur. — Drengirnir
eru nú rúmlega 40 að tölu og sungu, að þessu sinni, 14 lög, sem mörg varð að
endurtaka. — Söngurinn var oEtast hreinn, skær og þröttmikill, en of sterkur.
einkum á háu tónunum og spillti það nokkuð í fegurðarlegu tilliti. Vel má vera,
að inflúensufaraldurinn, sem gekk í vor, sé hér nokkur orsök. — Drengirnir þurfa
að temja sér veikan söng og það þurfa allir að gera, bæði eldri og yngri. Þrátt
fyrir þetta voru þó mörg lögin vel sungin og af miklum þrótti, má þar nefna fyrsta
lagið, sem var mun þróttmeira nú en í fyrra og að öðru leyti vel sungið. — Vel
fór Vögguvísa Brahms, enda var hún sungin veikt. Gaman var að heyra meðferð
kórsins á Glad sásom fágeln. Síðasta lagið fór einnig furðu vel, sé tekið tillit til
þess, hvað erfitt það er.
Það var mikið i ráðist, er Jón ísleifsson söngstjóri stofnaði Drengjakör Re.ykja-
65