Bændablaðið - 27.08.2009, Page 15

Bændablaðið - 27.08.2009, Page 15
Með aðild að ESB yrðu tveir atvinnuvegir lands manna í mestri hættu, þ. e. landbúnaður og sjávarútvegur. ,,Bændur myndu strax finna fyrir því á eigin skinni þegar óheftur innflutningur á toll frjálsum erlendum búvörum flæddi inn í landið en áhrifin kæmu ekki síður fram í stórauknu at vinnuleysi í þéttbýlisstöðum sem byggja afkomu sína á úrvinnslu búvara. Lengri tími myndi líða þar til áhrifin á sjávarútveg og fiskvinnslu kæmu í ljós en þau gætu þó orðið enn þungbærari fyrir þjóðarbúið. Þessar staðreyndir blasa við okkur út frá þeim meginreglum sem ESB fylgir og minna okkur á að ESB-aðild yrði einkum þungt högg fyrir hinar dreifðu byggðir landsins,“ segir Ragnar Arnalds formaður Heimssýnar. Bent hefur verið á að í nær öllum skoðana- könnunum á þessu ári hafi meiri hluti þjóðar- innar lýst sig andvígan aðild og því sé þess að vænta að landsmenn hafni aðildarsamningi í þjóðaratkvæði þegar á reynir. Ragnar segir að valt sé að treysta á niðurstöður skoðana- kannana. „Öll dagblöðin reka áróður fyrir ESB-aðild og fréttaflutningur og fræðsluþættir í útvarpi og sjónvarpi mótast mjög af málflutningi ESB- sinna. Dæmi um þessa hlutdrægni mátti heyra nú í ágústmánuði í fréttum af afstöðu finnskra bænda til ESB-aðildar. Óspart var gefið í skyn að þeir væru ánægðir með sinn hlut. En jafnframt var sagt frá því nánast í framhjáhlaupi að mjög mikil fækkun starfa hefði átt sér stað í finnskum landbúnaði í kjölfar ESB-aðildar. Hlutskipti tugþúsunda manna sem hröktust frá búskap skipti minnstu máli í þessum fréttum en hitt var gert að aðalatriði að þeir sem eftir sætu með allan búreksturinn í sínum höndum væru taldir fremur ánægðir með sitt enda gætu þeir selt afurðir sínar til Rússlands sem ekki er í ESB,‘‘ segir Ragnar. Hann minnir á að framkvæmdastjórn ESB eyðir mjög miklum fjárhæðum árlega til að hafa áhrif á almenningsálitið í aðildarríkjum, svo og í ríkjum sem sækja um aðild. Bent hefur verið á að áróðurskostnaður ESB nemi hærri fjárhæðum árlega en Coca Cola ver til auglýsingastarfsemi víðs vegar um heim, en það fyrirtæki rekur stífari áróður fyrir fram- leiðslu sinni en flest önnur. Það verði því á brattan að sækja þegar að því kemur að Íslendingum gefst kostur á því á lokastigi að stöðva það inngönguferli sem nú er að hefjast með því að ýta á neyðarhnappinn í þjóðar- atkvæðagreiðslu. „Staðreyndin er sú að víðast hvar hefur áróðursvél ESB-sinna megnað í krafti auðmagns og með ESB að bakhjarli að mola niður þá miklu andstöðu sem víða hefur verið í ríkjum sem sótt hafa um aðild. Að þessu leyti eru Norðmenn alger undantekning því að þeir hafa tvívegis hafnað ESB-aðild á seinustu stundu.‘‘ Hvernig tókst þeim að standa af sér þann gríðarlega þrýsting sem á þá var lagður? „Þar eins og hér voru fjölmiðlar mjög hlutdrægir í þágu ESB-sinna og við ramman reip var að draga því að forystuliðið í alþýðu- sambandi og vinnuveitenda samtökum tók einnig fullan þátt í að syngja ESB-aðild lof og dýrð. En það sem gerðist var að fólkið í landbúnaði og sjávarútvegi, bændur, launafólk og atvinnurekendur í hinum dreifðu byggðum landsins, lét ekki beygja sig heldur fylkti sér gegn aðild með svo yfirgnæfandi meirihluta að þótt höfuðborgarsvæðið væri fremur hallt undir aðild dugði það ekki til. Þeir sem lögðu áherslu á að verja stöðu landbúnaðar og sjávarútvegs réðu úrslitum,‘‘ segir Ragnar. Ekki er ólíklegt að hliðstæð staða gæti komið upp hér á landi. Ef nógu margir sem gera sér fulla grein fyrir mikilvægi landbúnaðar og sjávarútvegs gerast þátttak endur í þeirri baráttu sem nú er framundan með yfirlýstum stuðningi og fjárfram lögum og þá ekki síður á þann hátt að sem flestir kynni sér rækilega meginrök málsins og taki virkan þátt í um - ræðum á mannamótum þar sem ESB-aðild ber á góma, þá gæti það ráðið úrslitum. ,,Hér gildir sem oftar að margt smátt gerir eitt stórt. Rökin gegn aðild eru sannfærandi og sterk og duga vel ef fólk á þess kost að átta sig á þeim í því áróðursmoldviðri fyrir ESB sem nú gengur yfir,‘‘ segir Ragnar Arnalds formaður Heimssýnar. Samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir útgáfufélagið Andríki eru 48,5% Íslendinga andvíg inngöngu í Evrópu- sambandið en 34,7% henni hlynnt. 16,9% sögðust ekki hafa tekið afstöðu til málsins. Sé aðeins miðað við þá sem tóku afstöðu eru 58,3% andsnúin inngöngu en 41,7% henni fylgjandi. Síðast voru birtar niðurstöður sam bæri legrar könnunar í byrjun maí sl. þegar Capa cent Gallup kannaði afstöðu landsmanna fyrir Ríkisútvarpið. Þá voru 38,7% á móti inngöngu en 39% studdu hana. Samkvæmt því hefur stuðningur við inngöngu dregist saman um rúm 4% en andstaðan hefur að sama skapi aukist um tæp 10%. Einnig var spurt að þessu sinni um afstöðu til þjóðaratkvæðis vegna umsóknar um inngöngu í Evrópusambandið og sögðust 60,9% vilja slíka atkvæðagreiðslu en 29,2% voru því andvíg. 9,9% tóku ekki afstöðu. Þetta er í samræmi við fyrri kannanir um sama efni. Mikill meirihluti vill slíka atkvæðagreiðslu þó ríkis- stjórnin hafi hafnað því. Skoðanakönnunin var gerð dagana 16. til 27. júlí sl., úrtakið var 1273 manns og svarhlutfallið 56,3%. Ríkisstjórnin ákvað með naumum meirihluta á Alþingi þann 16. júlí að sækja um inngöngu. Landbúnaður og sjávar­ útvegur í mestri hættu Staðreyndin er sú að víðast hvar hefur áróðurs vél ESB-sinna megnað í krafti auð- magns og með ESB að bakhjarli að mola niður þá miklu andstöðu sem víða hefur verið í ríkjum sem sótt hafa um aðild. Að þessu leyti eru Norðmenn alger undan- tekning því að þeir hafa tvívegis hafnað ESB-aðild á seinustu stundu, segir Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar. Meirihluti Íslendinga andvígur aðild að Evrópusambandinu „Það þarf engan snilling til að sjá að 3 atkvæði af 350 í ráðherraráðinu vigta ekki mikið í ESB.“ Ísland fengi 3 atkvæði af 350 í ráðherraráðum þar sem mikilvægustu ákvarðanirnar eru teknar - og 5 atkvæði af 750 á ESB þinginu í Brussel. Því minni sem þjóðin er, því meiri er skerðing sjálfstæðis. Ísland yrði líklega eins og hreppur á jaðri stórríkisins. Brynja Björg Halldórsdóttir, formaður UVG á höfuðborgarsvæðinu. Völd litlu ríkjanna fara minnkandi Ertu sammála? Skráðu þig á heimssyn.is Heimssýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum „Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.“

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.