Bændablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 6
Bændablaðið | fimmtudagur 16. febrúar 20126
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 6.600 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.300.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
Landbúnaður í lykilhlutverki
LEIÐARINN
Fulltrúar íslenskra bænda munu
undir lok febrúar koma saman
á árlegu Búnaðarþingi. Fyrir
þinginu liggja margvísleg brýn
verkefni eins og orkumál í sveitum
landsins.
Í orkumálum eiga íslenskir bænd-
ur örugglega mun meiri möguleika en
flestir gera sér grein fyrir. Hingað til
hafa menn einblínt á fallvatnsvirkj-
anir og virkjun jarðhitaorku en mögu-
leikarnir eru margfalt fjölbreyttari.
Lítil sem engin umræða hefur farið
fram um nýtingu á straumvatni til
framleiðslu á óstöðugri raforku m.a.
til vetnisframleiðslu án þess að reisa
umfangsmikil stíflumannvirki. Til
slíkrar framleiðslu mætti líka nota þá
gríðarlegu orku sem falin er í sjávar-
föllunum auk gríðarlegrar umfram-
orku sem þegar sveimar um rafkerfi
landsmanna og verður að engu.
Ef horft er á nýtingu umframork-
unnar, þá verða menn líka að taka til
skoðunar hugmyndir um að flytja alla
umframorku úr landi um sæstreng.
Slík binding orkusölu gæti vissulega
aukið tekjur Landsvirkjunar, en
afleiðingarnar gætu líka orðið mjög
alvarlegar fyrir framtíðaratvinnuupp-
byggingu víða um land. Vegna EES
samninga myndi það án efa þýða
stórhækkun raforkuverðs á Íslandi
og hvar stæðu garðyrkjubændur og
annar landbúnaður, íslenskur iðnaður
og íslensk heimili þá.
Framleiðsla á gasi úr fjóshaugum
landsmanna er ekki bara möguleg,
heldur hefur tæknin til þess verið
þekkt um aldir. Með því að beita
efnahvörfum og niðurbroti má
umbreyta verðlitlum fjóshaug í dýr-
mætt eldsneyti og mun mikilvirkari
áburð en annars er mögulegt. Þannig
má spara í rekstarkostnaði búanna
auk sparnaðar í innflutningi og
drjúgan gjaldeyri.
Fleira má þó nýta en fjóshauginn.
Allur gróður hvaða nafni sem hann
nefnist er nýtanlegur til eldsneytis-
framleiðslu. Með útsjónarsemi og
skipulagi mætti þó margfalda getuna
til eldsneytisframleiðslu og rækta
mikilvirkar jurtir sem þrífast á landi
sem annars er lítt eða ekki notað til
framleiðslu á kjöti eða mjólk. Eins
og lýst var í síðasta Bændablaði er
mjög vel framkvæmanlegt að fram-
leiða olíu, gas og bensín úr íslenskum
lífmassa með aðferðum sem vel eru
þekktar.
Þarna vantar ekkert nema áræði og
kjark til að hrinda þessum áformum í
framkvæmd. Hingað til hafa íslenskir
bændur ekki verið kallaðir kjarklausir
eða latir til vinnu svo framtíðin hlýtur
að vera björt.
/HKr.
Hlustendur morgunútvarps Rúv þann 13.
febrúar sl. hafa vafalaust hlustað af athygli á
viðtal við íslenska konu sem býr í Grikklandi
og upplifir efnahagsþrengingarnar þar í landi.
Frásögn hennar af mótmælum og átökum vegna
erfiðleika þjóðarinnar var beint af vettvangi í
Aþenu. Athyglisverð var lýsing hennar á því
hvernig komið er fyrir grískum landbúnaði.
Í öllu umrótinu hefur hann stórskaðast og
fólk gerir sér grein fyrir því að það er öðrum
þjóðum háð um mat. Þetta eru orð sem rétt er
að íhuga. Hver er sjálfum sér næstur. Matur er
sannarlega eitt af því sem þarf að tryggja þegar
áföll dynja yfir, hvort sem þau eru efnahagslegs
eðlis eða vegna náttúruhamfara. Án matarins
stöðvast samfélagið, menningin, menntun og
allt sem gerir okkur að þjóð.
Heimurinn allur býr við síhækkandi mat-
vælaverð. Fréttir berast af hörmungum vegna
verðhækkana á mat, næringarskorti og neyð.
Landbúnaðurinn og matvælaframleiðslan hefur
á örfáum undanförnum árum komist í kast-
ljósið vegna mikilvægis, bæði fyrir hag fólksins
í heiminum og vegna samspils við umhverfið.
Landbúnaður er flókinn, viðkvæmur og með
langa framleiðsluferla. Hann þarf stöðugleika til
að rækja hlutverk sitt.
Bóndinn stendur ekki einn
Góð samstaða er um íslenskan landbúnað í okkar
þjóðarsál. Í nýlegri rannsókn, sem fjallað er um á
bls. 10 hér í blaðinu, kemur einstaklega skýrt fram
sá góði hugur sem fólk ber til íslenskra bænda
sem njóta mikillar virðingar. Við höfum gengið
í gegnum hrun, það ríkir tortryggni og vantraust.
En bóndinn stendur uppúr, hann er elskaður! Þetta
er mikilvægt fyrir bændur að heyra og hugleiða.
Þessi einstaka staða er ekki tilviljun. Svo mikið
er víst að Íslendingar eru mjög tengdir landinu
sínu og náttúrunni. Þeir vita að bóndinn sinnir
starfi sínu allt árið um kring af dugnaði og elju.
Bændur geta þó gert betur. Við eigum hvergi að
gefa eftir í að kynna okkar starf fyrir almenningi,
koma skipulega fram og rækta okkar gildi sem
best. Við eigum mörg og glæsileg fyrirtæki og þar
að auki stundum við viðskipti við fjölbreytta flóru
fyrirtækja. Þéttum þennan hóp og tökum höndum
saman um að gera betur. Samtök bænda hafa víða
erlendis beitt sér fyrir fjölþættu samstarfi með
heildarhagsmuni landbúnaðarins og þjóðarinnar
í huga. Horfum til samtakamáttar okkar. Bóndinn
stendur ekki einn, hann þarf allt sitt umhverfi til
að gera hann að því sem hann er.
Stöndum saman og höfum jákvæðni
að leiðarljósi
Það þarf margt að laga í landbúnaði, gera betur og
beita nýjum aðferðum. Við eigum að trúa á landið
okkar, auðlindirnar, búféð okkar, en fyrst og fremst
á okkur sjálf. Segja frá hver við erum, hvaðan
við komum og hvert við viljum fara. Bændurnir,
fyrirtæki þeirra, þjónustuaðilar sveitanna og
vísindafólk landbúnaðarins verður að þétta sínar
raðir. Klasinn „íslenskur landbúnaður“ verður að
sýna hvers hann er megnugur, hvaða máli hann
skiptir, segja frá viðfangsefnum sínum og lýsa
tækifærunum. Við verðum að hlusta á fólkið í
landinu. Hvernig vill það láta fara með landið
og nýta auðlindir þess? Grænu orkuna, grasið og
þau einstöku verðmæti sem felast í vatninu okkar.
Staða bóndans er einstök. Mikilvægast af
öllu er að við bændur köstum af okkur hlekkjum
svartsýni og bölmóðs sem of mikið litar okkar
eigin sjónarmið. Bændur eru þeir sem helst geta
og eiga að efla trú landsmanna á landinu sínu og
tækifærum þess.
/HB
Áræði og kjarkur
Þessir ungu menn skoða Hrútaskrána hjá ömmu og afa í Brekku, Þykkvabæ
af miklum áhuga þegar þeir drífa sig í sveitina. Þeir heita Gunnar Baltasar
Guðmundsson 3ja ára og Mikael Máni Leifsson 2ja ára.
Þrír stærstu áburðarinnflytjendur
landsins hafa nú birt verðskrár
sínar fyrir árið 2012. Verðskrár
allra fyrirtækjanna hækka frá
síðasta ári, mismunandi eftir teg-
undum. Eru skýringarnar á því
hækkanir á áburðarverði erlendis
að sögn framleiðenda. Búvís er að
landa samningum við sína birgja og
mun birta verðlista á allra næstu
dögum.
Sláturfélag Suðurlands (SS) reið á
vaðið seinnipart janúar síðastliðins. Í
tilkynningu frá fyrirtækinu kom fram
að niðurstöður efnagreininga á áburð-
inum muni liggja fyrir áður en hann
verður fluttur til landsins. Það sé gert
til að tryggja að kadmíum innihald
hans sé innan viðmiðunarmarka. Eins
og kunnugt er voru tvær tegundir
Yara áburðar sem SS seldi í fyrra
með kadmíum innihald yfir mörkum.
Verð hækkar milli ára og er hækkun á
algengum tegundum um 10 prósent.
Kadmíum verður innan marka
Skeljungur hækkar áburðarverð um
á bilinu 3 til 9 prósent milli ára. Líkt
og undanfarin ár kemur áburðurinn,
sem seldur er undir nafninu Sprettur,
frá breska áburðarframleiðandanum
Carrs. Á síðasta ári voru 11 tegundir
áburðar sem Skeljungur seldi með
of háu kadmíuminnihaldi. Þær upp-
lýsingar urðu hins vegar ekki opin-
berar fyrr en í desember á síðasta ári
þegar Matvælastofnun birti áburðar-
eftirlitsskýrslu sína. Ollu þær upp-
lýsingar mjög hörðum viðbrögðum,
enda lágu bráðabirgðaniðurstöður
um of hátt kadmíuminnihald fyrir í
kringum 20. maí á síðasta ári. Í bréfi
sem Skeljungur sendi viðskipta-
vinum sínum kemur fram að búið sé
að tryggja að kadmíummagn í áburð-
inum verði undir leyfðum mörkum.
Þá verði óháður aðili fenginn til að
gera mælingar á áburðinum áður en
honum verði dreift til viðskiptavina
og verði þær niðurstöður birtar um
leið og þær liggi fyrir.
Fóðurblandan selur áburð undir
merkjum Áburðarverksmiðjunnar
líkt og undanfarin ár. Ekki er um
breytingar á vöruframboði að ræða
en verðskráin hækkar milli ára, um
1 til 6,9 prósent, mismunandi eftir
áburðartegundum.
Búvís hefur náð samningum við
sína birgja og býður upp á aukinn
fjölda áburðartegunda frá fyrra ári.
Ekki er búið að birta verðskrá en
að sögn Einars Guðmundssonar hjá
Búvís er hækkunin að meðaltali um
5 prósent.
Ýmis greiðslukjör eru í boði hjá
fyrirtækjunum og er bændum og búa-
liði bent á heimasíður fyrirtækjanna
til að glöggva sig betur á því. /fr
Áburðarverðskrár óvenju
snemma á ferðinni
og Grikkir séu orðnir verulega háðir öðrum þjóðum um mat.