Bændablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | fimmtudagur 16. febrúar 2012 Verkstæðisformaður Ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að verk- stæðisformanni. Um er að ræða starf sem felur í sér almennt viðhald og við- gerðir á bifreiðum. Bílaflotinn samanstendur af stórum og millistórum rútum auk jeppa sem notaðar eru í dagsferðir frá Reykjavík. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf í Apríl/Maí. Áhugasamir sendi starfsferilskrá auk upplýsinga um sig á netfangið: verkstaedisformadur@gmail.com vörubíladekk 893-3305 Til sölu              !! " # $!% # & !! ''  # ( !(! )) *! +  (   >? .     #   Skipulagsmál sveitarfélaga og „utanvegaakstur“ – Hver tekur ákvarðanir? Utanvegaakstur er vandamál hér á landi, en víðáttumikið kerfi veg- slóða hefur orðið til án þess að farið hafi verið eftir eðlilegum skipulagsferlum, sem felur í sér að vera samþykkt af til þess ábyrgum aðilum, skipulagsyfirvöldum og landeigendum. Mörg dæmi eru um að slíkir vegslóðar séu birtir í opinberum kortagrunnum sem opnir eru almenningi, oft í óþökk landeigenda og viðkomandi sveit- arfélaga. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi í umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem bar heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“ og var það styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Umsjónarmaður verkefnisins var Auður Sveinsdóttir, dósent við LbhÍ. Verkefnið fólst í að treysta skipulagsforsendur fyrir ákvarðanatöku um framtíð þessa veigamikla hluta vega og slóðakerfis sem enn er ósamþykkt og hefur meðal annars orðið til vegna aksturs utan vega. Sem dæmi sést mikið ósamræmi í sveitarfélaginu Borgarbyggð, en þar eru töluvert fleiri veg- slóðar birtir í opnum kortagrunni Landmælinga Íslands en á lög- bundnu og samþykktu aðalskipulagi Borgarbyggðar. Að auki er stór hluti reiðstíga Borgarbyggðar birtur sem akvegir í umræddum kortagrunni. Rétt er að benda á að í verkefninu var einnig skoðað hvort slíkt misræmi væri milli birtingar og samþykktar vegslóða innan Ásahrepps. Niðurstaðan er mjög svipuð, þ.e.a.s. mikið ósamræmi í því sem birt er á aðalskipulagi sveitarfélagsins og því sem sýnt er á opnum gagnagrunni Landmælinga Íslands. Ætla má að þessu sé svipað farið hjá öðrum sveitarfélögum. Samkvæmt lögum eru það sveitarfélögin sem fara með skipu- lagsvaldið á aðalskipulagsstigi og Skipulagsstofnun er eftirlitsaðili en ráðherra staðfestir. Sú spurning hlýtur því að vakna hvað sé rétt og eftir hverju er farið? Er aðal- skipulagið í reynd það stjórntæki sem sveitarfélögin hafa til að móta stefnu um landnýtingu og land- notkun svæðisins um árabil eða gagnslaust plagg - hverjir ráða? http://www.issuu.com/gislirafn/ docs/skipulagsferlar_og_mats- skalar_vegna_vegsl__a Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og dósent við Umhverfisskipulagsbraut Landbúnaðarháskóla Íslands. Kort af Borgarbyggð sem sýnir glöggt það misræmi sem er á milli aðalskipulagsins (sem staðfest var af ráðherra 2011) og opins kortagrunns Landmælinga Íslands. Ennfremur er algengt að árstíðabundnir smalavegir séu birtir í opnum kortagrunnum og ólíklegt að bændur og landeigendur kæri sig um að almennri umferð sé beint inn á slíka vegi. Full búð af glæsilegum Ítölskum sófasettum Síur í dráttarvélar WWW.VELAVAL.IS Vélaval-Varmahlíð hf. sími: 453-8888 Sendum frítt út á land. - Skoðið heimasíðu okkar Heimilisprydi.is Heimilisprýði ehf. - Sími 553-8177 - heimilisprydi@simnet.is Einnig úrval af hvíldarstólum, bókahillum, sófaborðum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.