Fréttablaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGHandverksbakarí LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 20122
Ætli það séu ekki gæði og nýjungar sem við höfum alltaf verið óhrædd að
prófa og viðskiptavinir kunna vel
að meta. Allt saman framreitt af
fagfólki sem hefur vegnað vel í
keppnum og unnið marga titla í
gegnum tíðina. Þar ber að nefna
son minn Hafliða Ragnarsson
sem er bæði þekktur hér og ytra
fyrir tertuskreytingar og ekki síst
konfekt sem landsmenn þekkja að
góðu.“
Þetta segir Ragnar Hafliðason,
eigandi Mosfellsbakarís, beðinn
um að gefa upp ástæðurnar fyrir
samfelldri sigurgöngu fyrirtækis-
ins sem fagnar þrjátíu ára afmæli
á árinu.
Ragnar er einn af stofnendum
Mosfellsbakarís sem var upphaf-
lega opnað í uppgerðu iðnaðar-
húsnæði í Urðarholti 2 árið 1982.
Hann viðurkennir að Mosfells-
bær hafi á þeim árum verið svo-
lítill svefnbær og því tekið smá
tíma að festa fyrirtækið rækilega í
sessi. Hins vegar hafi bakaríið átt
talsverðum vinsældum að fagna
síðan íbúarnir komust á bragð-
ið og orðspor fyrirtækisins tók að
berast víðar.
Frá árinu 2007 hefur Mosfells-
bakarí, verslun og bakarí, verið
rekið saman í glæsilegum húsa-
kynnum að Háholti 13 til 15. Kon-
fektframleiðslan fer hins vegar
fram við Háaleitisbraut þar sem
fyrirtækið keypti bakarí Her-
manns Bridde árið 2001. Í desemb-
er á síðasta ári opnaði fyrirtæk-
ið konfektbúð í Fógetahúsinu við
Ingólfstorg sem Ragnar segir hafa
hlotið góðar móttökur. „Verslun-
inni var mjög vel tekið og svo verð-
ur bara spennandi að sjá í sumar
hvernig ferðamenn kunna að
meta þessa viðbót við miðborgar-
flóruna.“
Nú styttist óðum í sjálft stór-
afmælið sem ber upp á 6. mars.
Hvernig er þér innanbrjósts á
þessum tímamótum? „Mér finnst
þetta hryllilega langur tími. Samt
er eins og ævintýrið hafi bara
byrjað í gær,“ segir Ragnar og
brosir. Bætir við að fyrirtækið sé
á mjög góðum stað. Reksturinn
sé á blússandi siglingu um þess-
ar mundir.
Fátt verður hins vegar um
svör þegar afmælisveisla berst í
tal. „Á síðasta stórafmæli seld-
um við valdar vörur á sama verði
og fyrir tuttugu árum og gerðum
okkur líka lítið fyrir og gáfum út
vandað dagatal. Hvoru tveggja
var afskaplega vel tekið af við-
skiptavinunum. Dagskráin í ár
er hins vegar enn í mótun. Þó
get ég óhikað lofað spennandi
viðburðum og að sjálfsögðu alls
konar lúxus, ekki bara á sjálfan
afmælisdaginn heldur út allan
marsmánuð.“
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmaður auglýsinga: Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is og s. 512 5429. | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Súkkulaði hefur verið ein eftirlætisfæða mannkyns síðan á dögum Maya og Az-
teca, enda guðafæða sem erfitt er að standast. Í gegnum aldirnar hafa menn
spreytt sig á að móta úr því fígúrur og listaverk og á hverju ári eru haldnar
fjölmargar keppnir þar sem súkkulaðiskreytingamenn keppa í því að móta
alls kyns kynjahluti úr súkkulaði. Hugmyndaauðginni virðast engin tak-
mörk sett enda er afraksturinn oftar en ekki undraverður eins og mynd-
irnar bera með sér.
Hugmyndaauðgin á
sér engin takmörk
Súkkulaði er ekki bara syndsamlega gott það er líka eitt vinsælasta mótunarefni
veraldar. Það er hægt að skapa nánast hvað sem hugurinn girnist úr bráðnu súkkulaði,
allt sem þarf er auðugt hugmyndaflug.
Súkkulaðihafmeyjan er einnig japönsk og gefur systur sinni í
Kaupmannahöfn ekkert eftir.Súkkulaðikragi frá Rússlandi.
Höfum bakað í ein þrjátíu ár
Bæði hollt og gómsætt er á boðstólum í Mosfellsbakaríi þar sem áhersla er lögð á eigin framleiðslu. Úrvals brauð, konfekt, kaffi og ýmsar sérvörur, svo
sem olíur, sultur og dressing eru þar á meðal. Bakaríið fagnar þrjátíu ára afmæli á árinu en það hefur átt samfelldri sigurgöngu að fagna frá upphafi.
Ragnar Hafliðason er einn af stofnendum Mosfellsbakarís sem hefur notið vinsælda um áratugaskeið. MYND/ANTONMosfellsbakarí er þekkt fyrir úrvals kökur og tertur. Bakaríið leggur áherslu á eigin framleiðslu.
Mér finnst þetta hryllilega langur tími. Samt
er eins og ævintýrið hafi bara byrjað í gær.
Súkkulaði-
hugsuðurinn
eftir ónefndan jap-
anskan súkkulaðilista-
mann er nákvæm
eftirlíking af
styttu Rodins.
Bara miklu
bragðbetri.