Fréttablaðið - 18.02.2012, Page 44

Fréttablaðið - 18.02.2012, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGHandverksbakarí LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 20124 Bolludagur er í nánd. Í til-efni hans er bráðsniðugt að krakkarnir baki brauð- bollur svo eitthvað fari ofan í þau annað en rjómi og glassúr. Brauð- bollubangsar eru bæði sætir og góðir á bragðið og gaman að búa þá til. Þá má smyrja brauðbollur með gúrku, osti og papriku í stað- inn fyrir glassúr og rjóma. Brauðbolludeig 2 ½ tsk. þurrger 1 dl heitt vatn 1 dl mjólk (Hrært saman og látið bíða) 1 msk. matarolía ½ tsk. púðursykur 4-5 dl hveiti ¼ tsk. salt (má sleppa) Allt hnoðað vel saman og látið hef- ast í að minnsta kosti 30 mínútur. Þá eru mótaðar bollur af öllum stærð- um og gerðum úr deiginu og þeim raðað skemmtilega saman á bök- unarplötu. Í bollubangsa þarf eina stóra bollu fyrir maga, aðeins minni bollu fyrir haus, fjór- ar minni bollur fyrir fætur og hendur og svo litlar bollur fyrir eyru og nef. Bangsarnir eru svo penslaðir með eggi eða mjólk og bumban skreytt með fræjum eða kornum. Eins er skemmtilegt að búa til bollu- blóm, bollukindur og bolluský, bollu- snjókarl og bollutré. Bollubangsarnir eru síðan bakaðir ljósbrúnir við 180°-200° eða í um 10 mínútur. Uppskrift að bolludeigi er fengin af www.hugi.is. Bangsar á bolludag Börn eru liðtækir bakarar ef foreldrarnir mikla ekki fyrir sér hreingerninguna í eldhúsinu á eftir. Brauðbollubangsar eru sætir og góðir og gaman að búa þá til. Krakkar hafa gaman af að baka. Nýtið daginn fyrir Bolludag til að baka ilmandi Bollub- angsa og harkið af ykkur tiltektina í eldhúsinu á eftir. NORDICPHOTOS/GETTY Krúttlegir bollubangsar eru bragðgóðir. Í staðinn fyrir rjóma og glassúr má líka nota gúrku, papriku og ost. VÍST ERU TERTUR HOLLAR Lífið væri beinlínis litlausara ef ekki væri fyrir litríkar tertur og sykrað sætabrauð af og til. Tertuáti þarf heldur ekki að fylgja eintóm óhollusta því kökur verða bara betri og feg- urri skreyttar gljáðum ávöxtum, auk þess að innihalda gnótt C-vítamíns og annarra bætiefna. Prófið bara að skreyta marsipan- kökubotn með bláberjum, kívi, mandarínum og jarðarberjum ofan á frískandi vanillukremi og sjá! Hollasta tertan á veisluborð- inu verður sú vinsælasta meðal veislugesta. DÍSÆTAR MINNINGAR UM AFA OG SNÚÐA Margir eiga hjartfólgnar bernskuminningar um dýrmætar samveru- stundir með afa og ömmu yfir heimagerðu bakkelsi eða spariferðum í bæinn þar sem komið var við í bakaríi til að gæða sér á tertusneið, snúð eða góðgæti að vali barnsins. Það jafnast enda fátt á við kompaní ömmu og afa sem jafnan láta eftir sér dálítið dekur við barnabörnin og um að gera að safna dísætum minningum um freistingar og fallegan félagskap þeirra í bakaríum landsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.