Fréttablaðið - 17.03.2012, Page 78
17. mars 2012 LAUGARDAGUR42
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
EIRVÍK innréttingar
NÝJUNG
á íslenskum
innréttingamarkaði
Farðu alla leið með Eirvík
Við höfum gert samning við einn stæsta innréttingafram-
leiðanda Þýskalands um framleiðslu á eldhúsinnréttingum
sem verða seldar undir vörumerki Eirvíkur.
Þér er boðið í glæsilegan sýningasal okkar þar sem við
kynnum nýjustu strauma í hönnun eldhúsa.
ÞÝSKÍSLENSKSAMVINNA
SÝNING LAUGARDAG KL. 11:00-15:00
U
pphaflega ætlaði ég
bara að vera á Akur-
eyri í eitt ár. En svo
hef ég ílengst hér
og kann afar vel við
mig,“ segir Alberto
Porro Carmona sem flutti til Akur-
eyrar fyrir þremur árum. Alberto er
spænskur en hafði reyndar búið víða
áður en hann kom til Íslands.
„Ég sæki innblástur í nýja staði
og nýtt landslag og finnst mjög gott
að breyta til. Ég lauk ungur háskóla-
námi í sögu, tónvísindum og tón-
listarstjórn og var farinn að kenna
í Háskólanum í Salamanca 21 árs
gamall. Þá bauðst mér að stjórna
hljómsveit Háskólans í Havana á
Kúbu og ég sló til. Þó að mömmu
fyndist að ég ætti að vera áfram
heima í þessari góðu stöðu,“ segir
Alberto og hlær.
Eftir Kúbu tók við dvöl í Arg-
entínu, Kanada og Skotlandi en
þaðan flutti Alberto til Akureyr-
ar. Þar starfar hann við Tónlistar-
skóla Akureyrar, kennir á saxófón
og stjórnar hljómsveit skólans. Þar
fyrir utan kennir hann spænsku
í Háskólanum á Akureyri en sú
kennsla hefur, eins og annað sem
hann tekur sér fyrir hendur, aukist
að umfangi.
„Það er ekki það að ég sé svo upp-
tekinn af því að hafa mikið að gera,
mér þykir bara svo gaman að því
sem ég geri að mér finnst frábært að
sökkva mér niður í verkefnin,“ segir
Alberto og bætir við að hann sé allt-
af að læra eitthvað nýtt sjálfur.
Skemmtilegra að kenna börnum
„Hér á Akureyri hef ég til dæmis
gert mér grein fyrir því að mér
þykir miklu skemmtilegra að kenna
börnum en fullorðnum. Og lykilat-
riði í þeirri kennslu er að skemmta
sér vel. Mér er sama þó að þau spili
ranga nótu, aðalatriðið er að það sé
gaman í tímunum.“
Alberto hefur smám saman þróað
kennsluaðferð í tónlist sem hann
segir virka afar vel. Hún felst í því
að styðjast við fleiri listgreinar en
tónlist í kennslutímum. „Ég læt
börnin til dæmis skrifa nýjan enda
á þekkt ævintýri eins og Búkollu, og
svo í framhaldinu að breyta enda á
lagi sem ég samdi um Búkollu. Þeim
finnst það miklu auðveldara eftir að
hafa prófað að breyta ævintýrinu.“
Alberto lætur nemendur sína
líka skoða málverk og velta fyrir
sér tilfinningum sem liggja að baki
sköpunarverkum listamanna. „Það
skiptir svo miklu máli að hafa til-
finningar með í tónlistarnáminu,
það hjálpar börnunum mjög mikið í
því að læra á hljóðfæri.“
Seldar á kostnaðarverði
Alberto hefur nú tekið sig til og
sett kennsluaðferðir sínar á blað.
Kennslubók fyrir saxófón kemur
út í vikunni og svo stefnir hann á
að gefa út kennslubækur fyrir öll
helstu hljóðfærin. Í bókunum eru
lög, ævintýri, teiknimyndasögur og
margt fleira sem tengist kennsluað-
ferðum Albertos.
„Þessar bækur verða seldar á
kostnaðarverði, ég gef alla vinnu
mína og þessi útgáfa væri ekki
möguleg ef ég hefði ekki fengið
margvíslega styrki. En þetta er
draumaverkefni sem ég vonast til að
verði gefið út um heim allan,“ segir
hann að lokum.
Gleðin er lykilatriðið
Alberto Porro Carmona fæst við kennslu og tónlistarstjórn á Akureyri. Nýjasta hugðarefni hans er er
hins vegar útgáfa óvenjulegra kennslubóka í tónlist. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti hann að máli.
Í GÓÐRA NEMENDA HÓPI Alberto og nemendur hans í Tónlistarskólanum á Akureyri. MYND/HEIÐA .IS
„Undirstaðan í hinu hefðbundna
kennslukerfi ætti að vera sköpun
og tjáning, það er meðvituð og
áunnin sköpun hljóðfæraleikara,“
segir í inngangi nýrrar kennslu-
bókar Albertos Porros Carmora
sem gengur út á það að nota
tilfinningar sem undirstöðu í hljóð-
færaleik.
Þegar henni er flett þá blasir við
ýmiss konar efni sem ekki er
vanalega í kennslubókum fyrir
hljóðfæri. Til dæmis eru nótur
lagsins My Funny Valentine sem
vekur ekki furðu en hins vegar er
óvanalegt að sjá spurningarnar
sem eru á sömu blaðsíðu og nem-
endur eiga að svara. Þar er spurt:
Er lagið glaðlegt eða sorglegt? og:
Hvað ímyndar þú þér þegar þú
spilar lagið?
Þetta er í samræmi við þá
aðferð Albertos að nota tilfinn-
ingar við tónlistarkennslu. En
fleira skemmtilegt er í bókinni.
Til dæmis er ein síða með
myndasögu þar sem bent er á
möguleikana
sem misfullar
appelsín-
flöskur gefa
til þess að
kenna á
blásturs-
hljóðfæri. Í
þeirri sögu
má sjá þá
Tikk og
Takk sem
birtast
víða á síðum
bókarinnar en þeir eru verk
Haraldar Inga teiknara.
Svo eru myndir af listaverkum
og ýmiss konar fjölbreytileg verk-
efni.
Alberto kennir nemendum
sínum líka slökun og öndun. „Þau
mega alltaf stoppa tímann og
biðja um 30 sekúndna slökun. Og
eftir það þá gengur okkur alltaf
betur,“ segir hann.
Bækur Albertos verða fáanlegar
í Eymundsson og Tónastöðinni.
Þær verða einnig gefnar út
fyrir ipad og aðrar spjaldtölvur.
Bækurnar verða seldar á kostnað-
arverði enda verkefnið hugsjónar-
verkefni Albertos.
APPELSÍN OG DJASS