Fréttablaðið - 28.04.2012, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.04.2012, Blaðsíða 8
28. apríl 2012 LAUGARDAGUR8 Dagskrá 1. Skýrsla rannsóknarnefndar lífeyrissjóða yfirferð Intellecta. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Gerð grein fyrir ársreikningi. 4. Tryggingafræðileg úttekt. 5. Samþykktir sjóðsins. 6. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt. 7. Önnur mál. Ársfundur 2012 Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda Ársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda þriðjudaginn 15. maí 2012 kl. 16:30, að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Reykjavík 23. 04. 2012 Ergo veitir frumkvöðlum umhverfisstyrki Lumar þú á hugmynd? Ergo veitir tvo styrki að fjárhæð 500.000 krónur hvorn til að styrkja frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála. Þannig vill Ergo leggja sitt af mörkum við þróun framtíðarlausna til sjálfbærrar nýtingar og verndunar náttúruauðlinda. Sendu inn þína hugmynd Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrkina á ergo.is. Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsókninni ásamt greinargerð fyrir því til hvers nýta skal styrkinn. Umsóknarfrestur er til 11. maí en styrkjum verður úthlutað þann 31. maí. Kynntu þér málið nánar á ergo.is sími 440 4400 > www.ergo.is Umhverfi Efnahagur Samfélag 1. Hversu margir milljarðar voru greiddir til fólks í veikindafríi árið 2008? 2. Hvar hefur Agnes M. Sigurðar- dóttir, næsti biskup, búið síðustu 18 ár? 3. Hvað heitir barnalagið sem Norðmenn sungu gegn Breivik? SVÖR: 1. 34 milljarðar - 2. Í Bolungarvík - 3. Regnbogabörn KÍNA, AP Kínverski andófs maðurinn Chen Guangcheng hefur flúið úr stofufangelsi og er sagður í felum einhvers staðar í Peking. Embættis- menn hófu strax ákafa leit að honum og beindu athyglinni í fyrstu að fjölskyldu hans. Það var He Pirong sem náði í Chen og ók honum á stað sem hún segir „nokkuð öruggan“ án þess að vilja láta meira uppi. He hefur verið í fararbroddi baráttunnar fyrir því að hann yrði látinn laus. Hún segir það ekki rétt, sem fullyrt var í dagblaði í Singapúr, að Chen sé kominn í bandaríska sendi- ráðið í Peking. Kínverska lög reglan sé byrjuð að leita að honum og í raun sé ekkert hægt að ábyrgjast um öryggi hans. Hún segir að Zhang Jian, bæjar- stjóri í Dongshigu, þorpinu þar sem Chen var í haldi, hafi orðið æfur þegar hann komst að því að hann væri flúinn. Hann hafi óðar farið með lið manna að heimili bróður Chens, klifrað þar yfir vegg og byrjað að þjarma að fjölskyldunni. „Þeir börðu alla úr fjölskyldunni sem voru heima,“ segir He. Einn frænda Chens, sem heitir Chen Kegui, hafi þá tekið upp kjötsax sér til varnar. „Hann sagðist hafa höggvið til nokkurra manna með kjötsaxinu og sært þá,“ hefur He eftir frændanum. Chen, sem er fertugur, hefur verið í stofufangelsi á heimili sínu í Dongshigu í hálft annað ár, eða frá því hann var látinn laus úr fang- elsi árið 2010. Hann hafði þá lokið afplánun fjögurra ára dóms sem hann hlaut fyrir að hafa valdið bæði eignaspjöllum og truflunum á umferð. Chen er lögfræðingur sem árið 2005 vakti athygli á bágu ástandi mannréttindamála í sveita héruðum Kína, þar sem embættismenn fram- fylgdu af mikilli hörku þeirri stefnu að enginn megi eiga fleiri en eitt barn. Chen er blindur og fullvíst þykir að honum hefði ekki tekist að flýja nema með hjálp íbúa í þorpinu Dongshigu. gudsteinn@frettabladid.is VEISTU SVARIÐ? Kínverskur andófsmaður flúði úr stofufangelsi: Chen er talinn fara huldu höfði í Peking FLÚINN Chen Guangcheng er blindur og fullvíst þykir að hann hafi notið aðstoðar við að flýja úr stofufangelsinu. STJÓRNSÝSLA Tekjur Landsnets á árunum 2006 til 2010 voru 5 millj- örðum hærri en sem nemur leyfi- legum tekjumörkum fyrirtækisins sem starfar eftir raforkulögum. Landsnet ber því að endurgreiða ofteknar tekjur en í lok árs 2020 skulu uppsafnaðar ofteknar tekjur ekki nema meira en 10 prósentum af uppfærðum tekjumörkum. Varð þessi niðurstaða ljós þegar uppgjöri Orkustofnunar á tekju- mörkum Landsnets fyrir ára bilið var skilað nýverið. Orku stofnun skal samkvæmt raforkulögum setja Landsneti svokölluð tekju- mörk sem eru þær hámarkstekjur sem fyrirtækinu er leyfilegt að inn- heimta með gjaldskrá sinni. Er há- markið ákvarðað út frá rekstrar- kostnaði, arðsemi og afskriftum fyrir tækisins. Í nóvember í fyrra sendi Orku- stofnun Landsneti uppgjörið en Landsnet gerði athugasemdir við aðferðafræði stofnunarinnar í ákveðnum þætti uppgjörsins. Í kjöl- farið voru gerðar á aðferðafræðinni ákveðnar breytingar og liggur upp- færð niðurstaða nú fyrir. - mþl Tekjur Landsnets á árunum 2006 til 2010 mun hærri en leyfilegt var: Landsnet endurgreiði 5 milljarða Ofteknar tekjur Landsnets í milljónum króna Ár Almennir notendur Stórnotendur Kerfisþjónusta Samtals 2006 601,1 -479,9 12,5 133,7 2007 334,8 -975,234 0,2 -640,2 2008 342,4 212,6 107,6 662,7 2009 256,5 2.332,9 69,7 2.659,1 2010 -50,5 2.312,2 -144,7 2.117,5 ALÞINGI Kostnaður ríkisins við flutning ráðuneyta og stofnana, meðal annars í tengslum við sam- einingu ráðuneyta, nemur ríflega 243 milljónum króna á þessu kjör- tímabili. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Fram- sóknarflokksins. Fjögur ráðuneyti sameinuðust í tvö og eitt ráðuneyti til viðbótar hefur flutt. Þá hafa Fjársýsla ríkis- ins og hluti Vinnumálastofnunar flutt með tilheyrandi kostnaði. - bj Kostar að sameina ráðuneyti: Kostnaður um 243 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.