Fréttablaðið - 28.04.2012, Blaðsíða 56
28. apríl 2012 LAUGARDAGUR10
Yfirverkfræðingur
Framkvæmda- og eignasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu yfirverkfræðings á landupplýsingadeild sviðsins lausa til umsóknar. Við
leitum að metnaðarfullum og vandvirkum einstaklingi til að hafa yfirumsjón með lóðauppdráttum borgarinnar. Yfirverkfræðingur
hefur mikil samskipti við lóðahafa, arkitekta, hönnuði, verktaka og aðra starfsmenn borgarinnar. Næsti yfirmaður er deildarstjóri
landupplýsinga deildar Framkvæmda- og eignasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Útgáfa og varðveisla eignamarkauppdrátta.
- Umsjón með mæliblaðagerð í nýjum hverfum.
- Hnitsetning lóða í eldri hverfum.
- Umsjón með hnitakerfum borgarinnar.
- Framkvæmd breytinga á lóðamörkum.
- Gagnaöflun og greining upplýsinga um lóðamörkin.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun í mælingaverkfræði, byggingarverkfræði eða
sambærilegum greinum.
- Gerð er krafa um framhaldsmenntun (M.Sc.).
- Reynsla af sambærilegu starfssviði er kostur.
- Færni í mannlegum samskiptum og hópstarfi.
- Frumkvæði, nákvæmi og metnaður í starfi.
- Færni í geometrískum útreikningum.
- Tölvufærni í AutoCAD, landupplýsingakerfum, Word og Excel.
- Þekking á lögum varðandi skipulag og byggingar, ásamt
tilheyrandi reglugerðum er kostur.
Um er að ræða 100% starf. Laun er samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lech Pajdak, deildarstjóri landupplýsinga, í síma 411 1111.
Umsóknarfrestur er til 14. maí nk. Sótt er um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is undir „ Störf í boði” og „Yfirverkfræðingur“.
Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.