Fréttablaðið - 28.04.2012, Síða 32
28. apríl 2012 LAUGARDAGUR32
S
kilnaðir þýða brostnir
draumar og eru oft
sársaukafullir. Flestir
foreldrar sem ganga í
gegnum skilnað hafa
áhyggjur af hvernig
börnunum muni reiða af og vilja
þeim hið allra besta. Það er hins
vegar margt sem hefur áhrif á
hvernig til tekst. Sé fólk reitt og
sárt út í fyrrverandi maka, sem
aftur litar öll samskipti, geta
börn lent í mikilli togstreitu ef
þau eru notuð sem tafl í því spili.
Þau eru líka eins og barómet á
líðan foreldranna og þjást oft
sjálf ef þeim líður illa.“ segir
Valgerður Halldórsdóttir félags-
ráðgjafi. Sem dæmi um mistök
foreldra nefnir hún að þeir noti
börnin stundum sem skilaboða-
skjóður sín á milli eða láti þau
vera með eftirlit á heimilum
hvors um sig. Stærstu skyssuna
geri þó þeir foreldrar sem láta
sig hverfa úr lífi barna sinna
í kjölfar skilnaðar, eða meini
börnum að hitta foreldri. Fjar-
vera geti haft mikil áhrif, rétt
eins og nærvera. „Börn þurfa
fullvissu um að þau séu elskuð og
að þau skipti foreldra sína máli,“
segir hún.
Foreldrahlutverkið breytist
Valgerður segir mikilvægt að
foreldrar sem standi í skilnaði
séu búnir að ræða það sín á
milli hvernig þeir ætli að haga
hlutunum. „Það fer illa í börn að
vita ekki hvað verður. Þau vilja
upplýsingar og þau vilja að for-
eldrar geti haft góð samskipti
sín á milli án þess að draga þau
inn í öll mál. Annars lenda þau
í hollustuklemmu sem er þeim
óholl. Vilji foreldrar setja hags-
muni barna sinna í fyrsta sæti
við skilnað má byrja á að taka
ákvörðun um að eiga góð sam-
skipti og virða þá staðreynd að
börn eiga tvö heimili.“
Oft segir Valgerður sam-
skipti barna minnka við það for-
eldri sem flytur af heimilinu. Nú
færist þó í vöxt að foreldrar hafi
börnin viku og viku í senn og
telur hún það í góðu lagi. Þó verði
að hafa í huga að ástæða geti
verið til að breyta til og mikil-
vægt sé að foreldrar meti stöðuna
reglulega. Samningar sem gerðir
séu þegar börn eru þriggja ára
þurfi ekki að henta þeim tíu ára.
„Börn sem eru illa stödd félags-
lega geta átt erfitt með að halda
í vini sína ef þau eru stöðugt að
skipta um heimili,“ segir hún og
bætir við að stundum upplifi börn
og ungmenni að þau eigi hvorki
heima hjá mömmu né pabba.
„Það kemur flestum á óvart
hvað foreldrahlutverkið breytist
með skilnaði,“ segir Valgerður.
„Barnið er allt í einu orðið hluti
af lífi sem foreldri hefur ekki
aðgang að. Foreldrið þekkir ekki
vinina sem barnið umgengst á
hinu heimilinu né fjölskyldur
sem það kynnist þar. Þetta er
óþægileg staða. Þess vegna er
svo mikilvægt að foreldrar geri
allt sem í þeirra valdi stendur til
að hafa samskiptin sín á milli í
lagi, þá verður miklu hægara að
halda yfirsýn. Eða hversu margir
unglingar leika ekki lausum hala
af því að foreldrar þeirra tala
ekki saman?“
Að ætla sér um of
Valgerður er formaður í Félagi
stjúpfjölskyldna sem heldur
meðal annars úti heimsíðunni
www.stjuptengsl.is. „Ég hef alla
ævi verið í einhvers konar stjúp-
fjölskyldu og þegar ég sem ein-
hleyp móðir giftist einhleypum
föður kynntist ég því vel á eigin
skinni. Svo er ég sem félagsráð-
gjafi oft með viðtöl sem snerta
slík mál þannig að ég þekki þau
frá öllum hliðum,“ segir Val-
gerður sem einmitt er að skrifa
bók sem kemur út hjá Forlaginu
í sumar sem koma ætti fólki vel
við skilnað og þegar það stofnar
til stjúpfjölskyldu. Hún segir
„vondu stjúpuna“ eða frekar
„pirruðu stjúpuna“ enn lifa góðu
lífi. „Fólk fer af stað fullt bjart-
sýni inn í stjúpforeldrahlutverkið
og vill gera vel. Sýni börn ekki
þau viðbrögð sem vænst er eða
samvinna við foreldri er ekki
gott, er stutt í vondu stjúpuna eða
vonda stjúpann. Ábyrgðin á því
hvernig gengur er ekki eingöngu
á ábyrgð stjúpforeldrisins, maki
þess og foreldri barnsins skiptir
ekki minna máli. Mistökin eru
þau að ætla sér um of,“ segir hún.
Það er barninu fyrir bestu að
talað sé um tengslin eins og þau
eru og haga sér samkvæmt því,
að mati Valgerðar. „Það kann
yfirleitt ekki góðri lukku að
stýra að skilgreina stjúpforeldri
eins og það sé foreldri barnsins
því þá er viss tilhneiging til að
skera á tengslin við blóðforeldrið.
Stjúpforeldri getur verið góð við-
bót við þann kjarna sem annast
barnið en kemur ekki í stað for-
eldris,“ segir hún.
Tíð tengslarof slæm
Í dag er málum þannig háttað að
þegar foreldrar sem fara einir
með forsjá barna sinna ganga inn
í sambúð eða giftast aftur fær
stjúpforeldrið sjálfkrafa forsjá
barnsins. Valgerður er þeirrar
skoðunar að kippa eigi þeirri
forsjá úr sambandi en gera stjúp-
foreldrum mögulegt að sækja
um forsjá barns, að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Hún segir
tíð tengslarof hafa slæm áhrif á
börn. Stundum komi stjúpur og
stjúpar inn í líf barna tíma bundið
en umgengnin eftir skilnað verði
að fara eftir samkomulagi. „Í
sumum tilvikum hefur stjúpfor-
eldrið verið í foreldrahlutverki
og væntumþykja skapast á báða
bóga. Ef vilji beggja er til að
viðhalda sambandinu má bjóða
barninu öðru hvoru í bíó eða
heimsókn. Stundum styrkist sam-
bandið og stundum dofnar það.“
Erfiðustu dæmin um svona
mynstur segir Valgerður vera
þegar stjúpforeldri hefur verið
í foreldrahlutverki og á annað
barn á heimilinu sem það
umgengst reglulega. „Það getur
verið sárt fyrir barn að horfa á
eftir systkinum sínum fara, en
vera skilið eftir eða ekki leyft að
fara með. Deilur stjúpforeldra
og foreldra við skilnað bitna oft
á börnunum.“ segir hún.
Þyrfti ókeypis ráðgjöf
Valgerður telur mikilvægt að
samfélagið styðji við fólk sem
er að fara í gegnum skilnað og
við stjúpfjölskyldur þannig að
þær geti fengið ráðgjöf án þess
að þurfa að opna budduna. „Fólki
er boðið á námskeið þegar það
eignast barn og ættleiðir barn
en ef það er að gerast stjúp-
foreldri þá fær það enga form-
lega leiðsögn, því mundi ég vilja
breyta. Ég vil sjá að um leið
og fólk skráir sig í sambúð eða
lætur gefa sig saman þá standi
því námskeið til boða ef það er á
leið í stjúpfjölskyldu. Í því fælist
mikilvæg barna- og fjölskyldu-
vernd.“
Börn lenda
í hollustu-
klemmu
Velferð barna skal ávallt hafa forgang, samkvæmt
þriðju grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Við erfiðan skilnað getur þetta ákvæði vafist fyrir
foreldrum, þrátt fyrir góðan ásetning, og stjúp-
foreldrar geta aukið á flækjuna eins og Valgerður
Halldórsdóttir, félagsráðgjafi og formaður
Félags stjúpfjölskyldna, gerði Gunnþóru Gunnars-
dóttur grein fyrir.
FORMAÐUR FÉLAGS STJÚPFJÖLSKYLDNA „Börn sem eru illa stödd félagslega geta átt erfitt með að halda í vini sína ef þau eru
stöðugt að skipta um heimili,“ segir Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Börn þurfa fullvissu um að þau
séu elskuð og að þau skipti for-
eldra sína máli.“
■ „Nei, ég er ekki í stjúpfjölskyldu, pabbi þeirra er
lifandi“
■ „Nei, ég er ekki í stjúpfjölskyldu, hann er bara vinur
barnanna minna.“
■ „Nei, ég er ekki stjúpa, börnin hans búa ekki hjá
okkur.“
■ „Nei, við erum eiginlega ekki stjúpfjölskylda, samskipti
hans við krakkana eru svo lítil.“
■ „Nei, ég er ekki stjúpi, börnin eru orðin svo fullorðin.“
■ „Hún er meira svona eins og mamma þeirra, hún er
svo góð við þau.“
■ „Nei, við erum ekki stjúpfjölskylda, börnin hans eiga
lögheimili hjá mömmu þeirra.“
■ „Nei, hann getur ekki verið stjúpi þeirra, við
foreldrarnir erum með sameiginlega forsjá.“
■ „Nei, við erum meira eins og venjuleg fjölskylda, hann
er eins og „pabbi“ hennar.“
■ „Nei, hann er ekki stjúpi minn, ég þoli hann ekki.“
■ „Nei, ekki lengur, við eigum börn saman.“
■ „Nei, við erum ekki stjúpfjölskylda, hún er bara konan
hans pabba.“
Úr væntanlegri bók Valgerðar um stjúptengsl.
STJÚPBLINDA SAMFÉLAGSINS
„Hann spyr alltaf konuna sína fyrst
ef ég bið hann um eitthvað. Það
er eins og hún ráði öllu.“
„Ég vildi ekki hafa hann í húsinu,
þetta var mitt og mömmu hús,
ekki hans. Hann reyndi að tengjast
mér en ég gerði honum það erfitt
fyrir.“
„Þetta er engan veginn að ganga
upp hjá okkur, þegar hans börn
koma þá gilda allt aðrar reglur
um þau en mín börn. Hann er
strangur við mín börn en eftir-
gefanlegur við sín. Ef ég minnist
á þetta þá segir hann þau koma
svo sjaldan og ég eigi ekki að láta
svona. Ég velti fyrir mér hvaða
reglur eigi síðan að gilda um
sameignlegan son okkar sem er
15 mánaða.“
„Stelpan hans stýrir öllum matar-
tímum hjá okkur með leiðindum
og hann gerir ekki neitt.“
Heimild: www.stjuptengsl.is
■ UMMÆLI FÓLKS Í STJÚPFJÖLSKYLDUM
einfaldlega betri kostur
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
mán. - fös. 11-18:30 lau. 10-18, sun. 12-18
Laxabeygla
Reyktur lax, egg, graflaxsósa
og salatblanda 895,-
NÚ 595,-
Í ár eru 20 ár liðin frá því að Ísland staðfesti Barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna. Í tilefni stórafmælis sáttmálans mun Fréttablaðið fjalla
reglulega í helgarblaði um málefni sem tengjast Barnasáttmálanum með
einum eða öðrum hætti.
20 ÁRA
Barnasáttmáli
Sameinuðu
þjóðanna
3. grein: Það sem barninu er fyrir bestu
Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn
skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu. Setja á
lög og reglur sem tryggja börnum þá vernd og umönnun
sem velferð þeirra krefst.
9. grein: Aðskilnaður frá foreldrum
Aðildarríki skulu tryggja að börn verði ekki skilin frá
foreldrum sínum nema ef velferð barnanna verður
ekki tryggð með öðru móti. Barn sem ekki elst upp
hjá báðum foreldrum á rétt á að umgangast þá báða
reglulega nema það sé andstætt hagsmunum þess.